Landsbankinn leggur fram gögn

Landsbankinn hefur nú lagt fram upplýsingar sem hann neitaði AFLi  Starfsgreinafélagi og öðrum viðskiptavinum um í byrjun nóvember síðastliðnum. AFL stefndi bankanum og Landsvaka, peningamarkaðsfyrirtæki bankans í kjölfarið og krafðist ýtarlegra gagna um viðskipti síðustu vikur fyrir lokun sjóðsins, upplýsinga um verkferla og möguleg innherjaviðskipti síðust vikur sjóðsins.

westf07482.jpg Á vef AFLs, asa.is, segir að svo virðist sem starfsmenn Landsbankans taki ákvarðanir um aðgengi viðskiptavina að upplýsingum eftir duttlungum hverju sinni þar sem engar forsendur liggi fyrir um af hverju upplýsingingunum var neitað fyrir mánuði eða veittar nú.

AFL segist muni halda málinu áfram enda traust fólks á vinnubrögð forsvarsmanna peningamarkaðssjóðanna ákaflega lítið og því nauðsynlegt m.a. að staðreyna að þær upplýsingar sem bankinn veitti í gær, séu í raun réttar og sannar.

Í tilkynningu AFLs vegna umfjöllun fjölmiðla um málið segir að tap félagsins nemi 168 milljónum króna. ,,Fjárhagur félagsins er eftir sem áður traustur. Félagið hefur notið verulegra tekna vegna iðgjalda m.a. erlends launafólks vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og byggingu álvers ALCOA. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að leggja tekjur umfram rekstrargöld fyrir til að safna varasjóðum.

Tap félagsins og sjóða þess við nýafstaðið bankahrun gekk ekki á höfuðstól inneigna þess en verulega gekk á ávöxtun síðustu ára. Félagið átti fé í öðrum innlánsstofunum og hefur ekki orðið fyrir tjóni vegna þeirra. Sjúkrasjóður AFLs veitir félgsmönnum meiri réttindi en viðmiðunarreglugerð Alþýðusambandins segir til um og m.a. mun lengri bótatíma eða 6 almanaksmánuði miðað við 4 sem viðmiðunarreglugerð mælir til um. Ennfremur veitir Sjúkrasjóður AFLs umtalsverða styrki til heilsueflingar og annarra heilsutengdra hluta. Ekki er fyrirsjáanlegt að skerða þurfi styrkveitingar eða önnur réttindi félagsmanna.

AFL hefur á liðnum árum staðið að árangursríkum verkefnum í nærsamfélagi á Austurlandi síðustu ár og má þar nefna verulega aðkomu félagsins að menntunarmálum fullorðinna, sí-og endurmenntun. Ennfremur stofnun Starfsendurhæfingu Austurlands sem nú starfar við góðan árangur og veitir tugum einstaklinga þjónustu. Félagið hefur verið í mikilli sókn á flestum sviðum, með eflingu trúnaðarmannakerfis, menntun og þjálfun trúnaðarmanna, eflingu innra starfs félagsins og þátttöku almennra félagsmanna í þjóðfélagsumræðu. Engar breytingar eru fyrirsjáanlegar á starfssemi félagsins.

AFL Starfsgreinafélag rekur skrifstofur á 10 stöðum á Austurlandi,“ segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.