Framlag til sveitarfélaga vegna samdráttar í aflamarki ákveðið

Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250 milljóna króna framlags úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks á árinu. Er framlaginu ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu.

 is.jpg

Úthlutunin nú byggist á sambærilegum forsendum og árið 2007 sem er áhrif ákvörðunar um aflaniðurskurð á einstök sveitarfélög þar sem aflamark er skráð. Þó er að þessu sinni miðað við minnkun aflamarks eins og það var í hverju sveitarfélagi um sig þann 1. september 2007, en ekki meðaltal úthlutaðs aflamarks nokkur fiskveiðiár þar á undan eins og gert var fyrir ári. Ráðuneytið telur að með því sé betur mætt áhrifum af niðurskurði í aflamarki þorsks í hverju sveitarfélagi þar sem skoðuð er staða aflamarks við upphaf þess tíma er niðurskurðurinn tók gildi. Alls er 200 milljónum króna varið til þessa þáttar. Þá er sú breyting gerð nú, að sérstakt tillit er tekið til breytinga sem átt hafa sér stað í lönduðum afla milli fiskveiðiáranna 2006-2007 og 2007-2008. Alls er 50 milljónum króna varið til þessa þáttar, en framlaginu er ætlað að mæta minnkandi umsvifum í starfsemi hafna vegna ákvörðunar um niðurskurð í aflamarki þorsks. Við úthlutunina var tekið mið af því, að vægi ofangreindra þátta er misjafnt í atvinnustarfsemi einstakra sveitarfélaga. Ennfremur var ákveðið að hámarksúthlutun til einstakra sveitarfélaga yrði 35 milljónir króna. Markmið úthlutunarinnar er að framlag renni til þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir umtalsverðum áhrifum vegna hins tímabundna samdráttar í þorskafla. 

Meðfylgjandi er úthlutun framlaga til einstakra sveitarfélaga á Austurlandi, með hliðsjón af ofangreindum reglum.

                                                           Íbúar            Samtals       Kr. á íbúa

                                                           1.des 2007

6709  Langanesbyggð 479 3.534.371 7.379
7000  Seyðisfjarðarkaupstaður 716 3.287.918 4.592
7300  Fjarðabyggð 5.111 6.578.163 1.287
7502  Vopnafjarðarhreppur 701 1.339.168 1.910
7505  Fljótsdalshreppur 366 0 0
7509  Borgarfjarðarhreppur 146 1.079.889 7.397
7613  Breiðdalshreppur 218 0 0
7617  Djúpavogshreppur 450 1.942.575 4.317
7620  Fljótsdalshérað 4.073 0 0
7708  Sveitarfélagið Hornafjörður 2.120 11.960.224 5.642
 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.