Ertu með áhugavert verkefni?
Ert þú listamaður eða vinnur þú á annan hátt að menningu og listum?
Viltu fá alþjóðlegan vinkil á verkefnin þín?
Viltu mynda ný tengsl?
Ertu með áhugavert verkefni?
Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn. Því viljum við bjóða þér á kynningarfund Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu.

Kynntu þér styrkjaáætlun Norrænu Ráðherranefndarinnar fyrir menningu og listir.
Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn. Því viljum við bjóða þér á kynningarfund Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu.
Bergljót Jónsdóttir forstjóri segir frá þeim möguleikum sem Norræna styrkjaáætlunin býður upp á og gefur góð ráð til umsækjenda. Eftir stutta kynningu verður gerð grein fyrir verkefni sem Menningargáttin hefur styrkt. Síðan fara fram pallborðsumræður með; Ágústi Guðmundsyni, Bergljótu Jónsdóttur, Hávari Sigurjónssyni, Ragnheiði Tryggvadóttur, Signýju Ormarsdóttur og Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.
Tími og staðsetning:
Mánudaginn 16. febrúar 2009 kl 13:00
Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík
Fundurinn fer fram á íslensku og ensku.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu hafa samband við
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku á