700IS sett í kvöld

Videó- og kvikmyndahátíðin 700IS Hreindýraland verður sett í Sláturhúsinu á Egilsstöðum klukkan 20:00 í kvöld. Alls eiga 76 listamenn úr ýmsum heimshornum verk á sýningunni. Heiðursgesturinn Steina kom á fimmtudag. Verk hennar verður sýnt á sex skjám í Sláturhúsinu. Ríflega 640 verk bárust. Nánari upplýsingar má finna á www.700.is.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar