Skip to main content

Engin olíumengun frá Beiti

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 16. sep 2022 12:04Uppfært 16. sep 2022 12:04

Einkennileg rák í siglingaleið Beitis, skips Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, reyndist koma frá hvalshræi en ekki vera olíumengun eins og fyrst var óttast.


Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Þar segir að gæslunni hafi borist gervitunglamynd frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu (EMSA) sem benti til þess að olía bærist úr Beiti sem var að veiðum austur af landinu. Gæslan fær reglulega myndir frá EMSA til að greina mengun og skipaumferð í lögsögunni.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði samband við áhöfn Beitis sem kannaðist ekki við að olíu hafi verið dælt í sjó og hafði engar skýringar á hvers vegna kerfin sýndu að mengun væri að koma frá skipinu.

Það var svo ekki fyrr en togarinn Vilhelm Þorsteinsson kom að Beiti sem uppgötvaðist að Beitir var með sprungið hvalshræ sem sat fast á perustefni skipsins. Enginn um borð hafði hugmynd um veru hvalsins á perunni en úr hræinu lak lýsi sem skyldi eftir sig brák.

„Þar með var ráðgátan leyst og laumufarþeginn á perunni var því eftir allt saman ástæða þess að viðvaranir bárust Landhelgisgæslunni. Þetta óvenjulega mál sýnir að fjareftirlit sem þetta er langt á veg komið og er sérlega mikilvægt til að hægt sé að halda uppi virku eftirliti í efnahagslögsögu Íslands,“ segir í tilkynningunni.

Ljósmynd: Birkir Hreinsson

Gervitunglamynd af rákinni auk vinnumyndar sem Siglingaöryggisstofnun Evrópu vinnur út frá henni og sendir Landhelgisgæslunni. Rákin endar þegar hvalurinn hefur fallið af perustefninu.

beitir brak