Yfir 300 myndir bárust í ljósmyndakeppni Fjarðabyggðar

Á vordögum stóð Fjarðabyggð fyrir ljósmyndasamkeppni undir heitinu „Fjarðabyggð með mínum augum“. Það er skemmst frá því að segja að mikill áhugi var á keppninni og rúmlega 300 myndir bárust. Fyrsti vinningur kom í hlut Ásgeirs Methúsalemssonar.


Fjallar er um málið á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að leitað var eftir myndum í fjórum flokkum: Staðarmyndir, götumyndir, hús, yfirlits myndir. Landslag, gróður, náttúra Fjarðabyggðar. Mannlíf, atvinnulíf og íþróttir. Dýralíf.

Ákveðið var að veitt yrðu verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar heilt yfir alla flokka. Auk þess yrðu veitt verðlaun fyrir bestu myndina í hverjum flokki að upphæð 15.000 kr.

Fyrsti vinningur kemur í hlut Ásgeirs Methúsalemssonar. Ásgeir sendi inn afar fallega mynd af Andapollinum á Reyðarfirði. Þessi mynd Ásgeirs var auk þess sigurvegari í flokknum „Staðarmyndir, götumyndir, hús, yfirlits myndir“.

Annar vinningu kemur í hlut Fjólu Þorsteinsdóttur sem sendi inn hrífandi mynd af Hoffellinu á Fáskrúðsfirði sem speglar sig í spegilsléttu vatni. Þessi mynd Fjólu var auk þess sigurvegari í flokknum „Landslag, gróður, náttúra Fjarðabyggðar“.

Þriðju verðlaun í keppninni hlýtur síðan Hrafnhildur Þórarinsdóttir. Mynd hennar af konum í blaki á strandblakvellinum í Neskaupstað í glampandi sól þótti afar skemmtileg og fanga vel iðandi mannlíf. Þessi mynd Hrafnhildar hlaut auk þess verðlaun fyrir bestu mynd í flokknum „Mannlíf, atvinnulíf og íþróttir“.

Þá hlaut mynd Dariu Richardsdóttur verðlaun sem besta myndin í flokknum „Dýralíf“. Mynd Dariu af ketti að teygja sig í góðu veðri á Eskifirði þótti afar skemmtileg.

Allar myndirnar sem sendar voru inn verða aðgengilegar innan skamms á sérstakri Flickr síðu Fjarðabyggðar, og verður það kynnt sérstaklega á vefnum og samfélagsmiðlum.

Mynd: Ásgeir Methúsalemsson.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.