Skemmtilegar og vel skrifaðar jólasögur

Úrslit liggja fyrir í jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar. Dómnefndin var samstíga í mati sínu og sammála um að sögurnar sem skilað var inn væru gríðarlega skemmtilegar og vel skrifaðar, að því er segir á vefsíðu Fjarðabyggðar.

„Höfundarnir ungu eru með öflugt hugmyndaflug og sögurnar frumlegar, fjölbreyttar og um fram allt jólalegar. Það er greinilegt að það leynast víða efnilegir rithöfundar í Fjarðabyggð en alls bárust 99 sögur í keppnina og var gríðarlega gaman að sjá þessa miklu þátttöku,“ segir á vefsíðunni.

Á milli jóla og nýárs verða birtar þær sögur sem báru af í keppninni.  Vinningshafar í jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar og grunnskólanna eru:

Yngsta stig (1.-4. bekkur)
1. Jólaáttfætlan
Höfundur: Iðunn Elísa Jónsdóttir
2. Jólatréð
Höfundur: Katrín Lilja
3. Jólaruglið
Höfundur: Símon Kristjánsson

Miðstig (5.-7. bekkur)
1. Sagan af Stúf
Höfundar: Katrín María Jónsdóttir og Gunnhildur Anna Birgisdóttir
2. Jólasaga
Höfundur: Bergþór Flóki Ragnarsson
3. Gluggakistan
Höfundur: Róza Madhara

Efsta stig (8. – 10. bekkur)
1. Hundrað gylltar glerkúlur
Höfundur: Tinna Brá Gunnarsdóttir
2. Jóladúfan
Höfundur: Viktor Franz Bjarkason
3. Hvar er jólaskapið?
Höfundur: Guðrún Randý

"Sögur útgáfa af rithöfundunum ungu glæsilegar bækur að gjöf og kunnum við Sögum bestu þakkir fyrir," segir á vefsíðunni.

"Takk öll ykkar sem tókuð þátt í jólasmásagnakeppninni, þið stóðuð ykkur með eindæmum vel, það var hrein unun að lesa sögurnar ykkar. Bestu þakkir til allra þeirra sem studdu okkur hjá Menningarstofu við framtakið og hjártansþakkir til þeirra sem sátu í dómnefndinni."

Mynd: Myndir af sigurvegurunum eru á Facebook síðu Menningarstofu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.