Ljósum prýddur Börkur verður á loki jólasíldarinnar í ár

jolasildarmynd10Guðlaugur B. Birgisson er sigurvegari ljósmyndakeppni Síldarvinnslunnar sem efnt var til í haust.

Síldarvinnslan efndi til ljósmyndakeppni í í byrjun október, um mynd á merkimiða sem notaur yrði á síldarföturnar undir jólasíld Síldarvinnslunnar í ár. Myndin þurfti að vera jólaleg og sýna skip eða athafnasvæði Síldarvinnslunnar.

Alls voru sendar inn á milli 50 og 60 myndir sem dómnefnd þurfti að vega og meta. Margar myndanna voru mjög góðar og uppfylltu fullkomlega þær kröfur sem gerðar voru.

Þegar upp var staðið voru dómnefndarmenn sammála um að mynd sem Guðlaugur B. Birgisson tók væri best og bar hún sigur úr býtum í keppninni. Mynd Guðlaugs sýnir Börk NK ljósum prýddan í Norðfjarðarhöfn.

Nú er jólasíldin fullverkuð og tilbúin og reyndar þegar farið að setja hana í föturnar. Víst er að vatn kemur í munn margra þegar minnst er á jólasíldina og ekki skemmir myndin á loki fötunnar fyrir þetta árið.

Ljósmyndir: Hákon Ernuson

jolasildarmynd1jolasildarmynd10

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.