Jurtir notaðar til að fæla mýs frá

egilsstadirHægt er að koma blómum og laukum valdra jurta fyrir við valda staði til að verjast ágangi músa eða bjarga lífi þeirra við varasöm svæði. Talsverður músagangur hefur verið á Egilsstöðum að undanförnu.

Skarphéðinn G. Þórisson, sérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, segir þekkt að blóm og laukar keisarakrónu fæli mýs frá sér með óþef.

Hægt er að nálgast jurtina í sérvöruverslunum. Rífa má laukinn í bita og koma fyrir undir bílum, nálægt útidyrahurðum eða öðrum þeim stöðum þar sem fólk vill ekki að mýsnar séu á.

Eftir miklar rigningar undanfarna daga hvetur Skarphéðinn íbúa til að koma laukunum nálægt vatnsgildrum til að koma í veg fyrir kvalafullan og ótímabæran dauðdaga hagamúsa.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.