Tvær sýningar verða opnaðar í Skaftfelli um helgina
Tvær nýjar sýningar verða opnaðar í Skaftfelli um helgina. Annars vegar er þar um að ræða sýningu danska listahópsins A Kassen og hins vegar Ragnheiðar Gestsdóttir og Curvers Thoroddsen.Allir listamennirnir hafa dvalist í gestavinnustofum Skaftfells að undanförnu. Sýning A Kassen verður í aðalsýningarsalnum en sýning Ragnheiðar og Curvers í bókabúðinni – verkefnarými.
A Kassen er danskur listahópur sem hefur verið starfræktur síðan 2005. Meðlimir eru Christian Bretton-Meyer, Morten Steen Hebsgaard, Søren Petersen og Tommy Petersen. Þeir stunduðu allir nám á sama tíma í Konunglega danska listaháskólanum í Kaupmannahöfn og útskrifuðust árið 2007. A Kassen hafa verið mjög virkir í sýningarhaldi og hafa einu sinni áður sýnt á Íslandi, í maí 2012 þegar hópurinn var með einkasýningu í Kling & Bang gallerí, sem var hluti af Listahátíð í Reykjavík.
Snemma á undirbúningstímanum fór A Kassen hópurinn að afla sér vitneskju um íslenska náttúru og menningu. Þeir uppgötvuðu að á suðurhluta Íslands er að finna banana plantekru sem er meðal þeirra stærstu í Evrópu. Ræktunin hófst árið 1951 í Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum í Ölfusi, rétt fyrir ofan Hveragerði. Bananarnir hafa verið ræktaðar þar óslitið síðan og er nú stýrt af Landbúnaðarháskóla Íslands. Árleg uppskera er um 100-120 klasar sem eru ræktaðir á 600-700 fermetra svæði. Gróðurhúsið er staðsett á jarðhitasvæði og notast er við jarðvarma og dagsbirtu við ræktunina.
Listamönnunum fannst þetta framtak áhugavert hliðstætt við áliðnaðinn sem fyrirfinnst á Austurlandi. Þar er framleitt allt að 360.000 tonn af áli á ársgrundvelli með vatnsaflsorku, sem fæst með virkjum tveggja jökulfljóta.
Bæði bananarnir og álið eiga það sameiginlegt að vera utanaðkomandi í íslenskri náttúru en jafnframt eru hin séríslensku náttúruöfl beisluð til að þjóna framleiðslunni. A Kassen studdust við þessar staðreyndir sem útgangspunkt við hugmyndavinnu og á meðan dvöl þeirra stóð héldu þeir áfram þróa verk sín.
Hópurinn fór í vettvangsferðir til að rannsaka og skoða fyrirbærin. Á Suðurlandi heimsóttu listamennirnir Landbúnaðarháskóla Íslands og kynntu sér hvernig jarðhiti er notaður til að hita upp gróðurhúsin.
Á Austurlandi keyrði hópurinn upp að Kárahnjúka virkjun og skoðuðu gljúfrin, stífluna og lónið þar sem vatnsaflsorkan á uppruna sinn. Í kjölfarið héldu þeir til Alcoa Fjarðaáls þar sem þeir fengu leiðsögn um álverið og kynningu á því hvernig vatnaaflsorkan frá Kárahnjúkum er notuð. Út frá þessum skoðunarferðum varð til prentefni með úrvali ljósmynda sem verður gefið út á komandi laugardag.
Sýning Ragnheiðar og Curvers kallast Fölblár punktur. Þau sýna afrakstur vinnu og tilrauna sinna á dvalartímanum en þar eru kannaðar bæði óravíddir heimsins og tilbreytingarlaus hversdagsleikinn á sama tíma.
Sýning þeirra opnar í dag klukka 17:00 og er opin á morgun og sunnudag frá 14:00 – 17:00. Sýning A Kassen verður opnuð á laugardaginn klukkan 17:00 og er opin til 26. ágúst á opnunartíma Skaftfells sem er 12-22 alla daga.