Eru íbúar á landsbyggðinni komnir í spor músarinnar?

Regína SigurðardóttirÞað er mál til komið að stjórnvöld opinberi stefnu sína í málefnum landsbyggðarinnar- og segi okkur umbúðalaust hvort  samfélögin á landsbyggðinni eigi sér lífs von.

Undanfarin ár hefur niðurskurðarhnífurinn verið á lofti – hörð atlaga hefur verið gerð að grunnþjónustu hvar sem er í dreifðari byggðum.
Síðast liðið haust sýndu íbúar víðs vegar um landið hug sinn í verki er þeir slógu skjaldborgir um heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar í sínum heimabyggðum- til þess að mótmæla harkalegum áformum um niðurskurð á fjárveitingum til þessara stofnana. Sem betur fer var tekið tillit til þessara mótmæla en bara til eins árs. Nú búa stjórnendur þessara stofnana sig undir aðra atlögu.

Það er mál til komið að stjórnvöld opinberi stefnu sína í málefnum landsbyggðarinnar- og segi okkur umbúðalaust hvort  samfélögin á landsbyggðinni eigi sér lífs von.

Undanfarin ár hefur niðurskurðarhnífurinn verið á lofti – hörð atlaga hefur verið gerð að grunnþjónustu hvar sem er í dreifðari byggðum.
Síðast liðið haust sýndu íbúar víðs vegar um landið hug sinn í verki er þeir slógu skjaldborgir um heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar í sínum heimabyggðum- til þess að mótmæla harkalegum áformum um niðurskurð á fjárveitingum til þessara stofnana. Sem betur fer var tekið tillit til þessara mótmæla en bara til eins árs. Nú búa stjórnendur þessara stofnana sig undir aðra atlögu.

Nú er verið að undirbúa ný fjárlög –hvaða framtíð þau koma til með að kynna okkur íbúum þessa lands er ekki gott að vita og við sem búum úti á landi bíðum beð ugg í brjósti eftir þeim dómi. Verður stoðunum endanlega steypt undan okkur með niðurskurði á fjárveitingum – Niðurskurði sem í raun lamar alla opinbera þjónustu. Niðurskurði sem leiðir til þess að langveikir verða tilneyddir til að flytja úr sinni heimabyggð til að eiga kost á þeirri þjónustu sem þeir þurfa á að halda og þeir eiga rétt á. Niðurskurði sem dregur allan mátt úr löggæslunni á landsbyggðinni –Niðurskurði sem enn eykur á aðstöðumuninn milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar- Niðurskurði sem hefur það í för með sér að þurfi menn að sinna persónulegum erindum hjá opinberum stofnunum verða þeir að leggja á sig löng ferðalög – Niðurskurði sem hefur það í för með sér að þeir sem vilja stunda framhaldsskólanám þurfa að flytja úr foreldrahúsum um 16 ára aldurinn- og svo mætti lengi telja.

Það er tími til kominn að menn átti sig á alvarleiga málsins- Með síauknum niðurskurði á fjárveitingum í opinberri þjónustu á landsbyggðinni er hægt og bítandi verið að murka lífið úr byggðunum.

Íbúar á landsbyggðinni eru komnir í spor  músarinnar sem gekk í gin kattarins eftir að hann var búinn að leika sér að henni í drjúgt langa stund- það er betra að segja okkur það strax að það sé mat stjórnvalda að leggja af byggð utan við ákveðinn radíus í kringum höfuðborgina en að halda áfram að draga okkur á asnaeyrunum.

Það er óviðunandi að fjárlög séu gerð til eins árs í senn og lögð fram og kynnt í lok árs og þeim sem ætlað er að framfylgja lögunum gert að bregðast við stórfelldum lækkunum á rekstrarfé á örskotstíma- Það ætti að vera krafa allra íbúa þessa lands að fjárlögin séu sett fram með það markmið að gera mönnum kleift að fara að lögum – Fjárlög eiga að styðja önnur landslög ekki vera þeim æðri.   Það er óþolandi að fjárlög til eins árs kollvarpi  forsendum fyrir byggð í landinu. Skammtíma markmið séu sett ofar langtímamarkmiðum. Máttvana opinberar stofnanir eru í raun einskis nýtar.

Það er kominn tími til að slá skjaldborgir um alla opinbera þjónustu á landsbyggðinni- Sýslumannsembættin- heilbrigðisstofnanir- skólana o.s.frv.. Það er ekki nóg að verja heilbrigðisþjónustuna við þurfum að verja öll opinber störf og þjónustu- það styður hvað annað.

Landsbyggðin lifir vill fá landsmenn til að ræða saman um þessa hluti – fá stjórnmálamenn til að hlusta á raddir okkar allra. Við viljum opna hreinskilna og upplýsta umræðu um þessi mál.  

Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi verður haldinn í Ketilási í Fljótum 8 október og eru allir sem hafa áhuga á að ræða framtíð og mikilvægi opinberrar þjónustu hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt  í umræðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.