Djúpivogur: Ungmennafélagið Neisti velur íþróttamann ársins

ithrottamenn neista 2015Fimmtudaginn 19.mars síðastliðin voru veittar viðurkenningar á vegum Ungmennafélags Neista. Voru veittar fimm viðurkenningar til metnaðarfullra og duglegra ungmenna.

Bergsveinn Ás var Hafliðason var valinn Íþróttamaður ársins. Bergsveinn mætir á allar og sýnir mikinn metnað. Hann var valinn ásamt 99 öðrum á sama reki, á hæfileikamót KSÍ og stóð sig þar með stakri prýði. Bergsveinn er áhugasamur og þykir virkilega góður íþróttamaður.

Fótbolta-Neisti

Jens Albertsson fékk viðurkenninguna "Fótbolta-Neisti". Jens þykir einstaklega hæfileikaríkur fótboltamaður, leggur mikið á sig til að ná réttri tækni og stundar fótbolta af mikilli elju.

Sund-Neisti

Þór Albertsson, Sund-Neisti. Þór vann stigabikarinn á sundmóti ÚÍA sumarið 2014. Hann keppti einnig á Landsmóti UMFÍ á yngra ári og vann þar medalíu. Þór er áhugasamur sundmaður og hvetjum við hann til að synda áfram.

Viðurkenning

Sérstök verðlaun fyrir ástundun og framfarir fengu þau Kristófer Dan og Diljá Snjólfsdóttir. Óskum við þeim innilega til hamingju.

Mynd: Frá vinstri, Kristófer Dan, Jens, Bergsveinn Ás, Þór og Diljá. Mynd: djupivogur.is

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.