Íþróttir helgarinnar: Allt að verða klárt fyrir Ístölt Austurlands

istolt 2013 0150 webSterkustu knapar Austurlands eru skráðir til leiks í Ístöltmóti hestamannafélagsins Freyfaxa sem fram fer á Móavatni við Tjarnarland á morgun. Kvennalið Þróttar í blaki leikur lykilleiki við Þrótt Reykjavík um helgina.

„Ísinn var mjög góður í gær að sögn staðarhaldara. Það hefur aðeins snjóað ofan á ísinn en við sköfum það af," segir Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson, formaður Freyfaxa.

Opið er fyrir skráningar til klukkan fjögur í dag en í morgun voru þær orðnar um sextíu talsins og flestir af sterkustu knöpum Austurlands komnir á blað.

Veðurspáin fyrir morgundaginn er ágæt, bjart en fremur kalt þannig að mikilvægt verður að áhorfendur klæði sig vel en búist er við að þeir verði yfir 100 talsins. Keppni hefst klukkan 10:20 og stendur fram undir myrkur.

Kvennalið Þróttar í blaki leikur tvo afar mikilvæga leiki við Þrótt Reykjavík í höfuðborginni í kvöld og á morgun.

Þróttur Neskaupstað er í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig en Þróttur Reykjavík í því fimmta með tíu stig. Fjórða sætið veitir þátttökurétt í úrslitakeppni mótsins í vor.

Þrjú stig fást fyrir 3-0 eða 3-1 sigur, tvö stig fyrir að vinna leik í oddahrinu en eitt fyrir að tapa í slíkum leik.

Í Lengjubikarnum í knattspyrnu heimsækir Fjarðabyggð Hauka á sunnudag.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.