Boccia er ekki íþrótt heldur trúarbrögð: Íslandsmótið hafið á Seyðisfirði

boccia setning sfk okt14 0032 webAlls eru 193 keppendur skráðir til leiks á Íslandsmótinu í einliðaleik í boccia sem hófst á Seyðisfirði í morgun. Spilað verður í sjö deildum í kvöld og á morgun.

„Ef þú kemur hérna seinni part laugardags þegar úrslitin eru í gangi þá kemstu að því að boccia er ekki íþrótt heldur trúarbrögð," segir Jón Björn Ólafsson hjá Íþróttasambandi fatlaðra.

Það eru félagsmenn Viljans á Seyðisfirði sem eru gestgjafar mótsins að þessu sinni en það var síðast haldið þar árið 2005.

„Boccianefnd sambandsins tekur við skráningum og raðar í riðla en við þurfum að skaffa um fjörtíu manns til að vera dómarar og ritarar og merkja vellina," segir Unnur Óskarsdóttir, formaður Viljans.

Keppni hófst klukkan níu í morgun og spilað er á tólf völlum til klukkan tíu í kvöld. Keppni hefst aftur klukkan níu í fyrramálið og stendur til um klukkan þrjú. Mótinu lýkur með lokahófi þar sem verðlaun eru afhent.

Þungamiðjakeppninnar verður í sal íþróttahússins á Seyðisfirði en keppendur gista þar og á Egilsstöðum. Mótið var sett í gærkvöldi og marseruðu fulltrúar félaganna inn á völlinn við það tilefni.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.