Trarappa: Árleg sýning Listaháskólans í Skaftfelli

tarappa_hopur_lhi_2013.jpg
Á morgun opnar í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi, árleg sýning myndlistarnema á þriðja ári við Listaháskóla Íslands. Hópurinn hefur dvalist á Seyðisfirði undanfarnar vikur.

Allir nemendur hafa haft það að leiðarljósi að nýta sér umhverfi bæjarins og einstaka hjálpsemi Seyðisfirðinga við gerð verka sinna. Möguleikarnir eru óteljandi og viðfangsefnin fjölbreytt.

Einn nemandi hefur til dæmis unnið náið með sprengjusérfræðingi bæjarins á sama tíma og annar hefur valið sér það verkefni að safna hlátri heimamanna. Aðrir nemendur hafa þá einbeitt sér að náttúru og umhverfi Seyðisfjarðar en vinna á ólíkan máta úr efniviðnum.

Þátttakendur eru Ásgeir Skúlason, Dagrún Aðalsteinsdóttir, Emma Guðrún Heiðarsdóttir, Halla Birgisdóttir, Hrönn Gunnarsdóttir, Katrín Dögg Valsdóttir, Leifur Ýmir Eyjólfsson, Matthías Rúnar Sigurðsson, Nikulás S. Nikulásson, Ólöf Kristín Helgadóttir, Ólöf Rún Benediktsdóttir, Ragnheiður M. Sturludóttir, Þorgerður Þórhallsdóttir og Victor Ocares. Leiðbeinendur og sýningarstjórar eru Björn Roth og Kristján Steingrímur Jónsson.

Sýningin opnar á morgun kl. 16:00 og ber yfirskrfitina Trarappa. Hópurinn er með heimasíðu þar sem fylgjast má með undirbúningi og daglegu lífi þeirra á Seyðisfirði. Sýningin stendur yfir til 5. maí.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.