Þetta reddast í Sláturhúsinu í kvöld

thetta_reddast.jpg
Þetta reddast! ný íslensk kvikmynd verður sýnd í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í kvöld. Myndin var frumsýnd í bíósölum höfuðborgarinnar í byrjun mánaðarins.

Þetta reddast! er mynd um ungan blaðamann sem er kominn á síðasta séns, bæði í vinnunni og í sambandinu, vegna óhóflegrar drykkju sinnar. Hann ákveður að reyna að bjarga sambandinu sínu með því að bjóða kærustunni á Hótel Búðir þar sem friður og ró svæðisins muni leggjast yfir dömuna og hann geti dekrað við hana. 

En það vill svo óheppilega til að honum eru settir úrslitakostir af ritstjóra sínum um sömu helgi; hann verður að fara upp á Búrfellsvirkjun og gera úttekt á svæðinu. Hann ákveður þá að slá tvær flugur í einu höggi og bjóða kærustunni í rómantíska vinnuferð upp á Búrfellsvirkjun. En háspennusvæðið við virkjunina er kannski ekki best til þess fallið að bjarga sambandinu...

Myndin er sýnd klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 1.200 krónur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.