Forseti Íslands veitti ungmennum í Fjarðabyggð hvatningu

hvatning forseta 1Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands veitti í gær ungmennum úr Fjarðabyggð sérstaka hvatningu forsetaembættisins til ungra Íslendinga. Hann sagði það hafa verið erfitt verk en ánægjulegt að velja úr glæsilegum hópi.

Viðurkenningarnar voru veittar á fjölskylduhátíð sem haldin var í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði. Ungt fólk var í öndvegi í dagskránni, en hápunktur hennar var veiting hvatningar til ungra Íslendinga.

Í máli forsetans kom fram að í heimsóknum hans í skóla þá um daginn hafi hann verið hrifinn af því hversu upplitsdjörf ungmennin hafi verið og spurt margra góðra spurninga. Hann tók jafnframt fram að hann væri viss um að unga kynslóðin í dag væri hæfari og efnilegri en hans eigin kynslóð var á sínum tíma.

Alls veitti forsetinn 16 ungmennum sérstaka hvatningu en einn úr hópnum, Mjófirðingurinn Sigfús Valur Guðmundsson komst ekki á staðinn sökum ófærðar. Forseti skikkaði því bæjarstjóra að færa Sigfúsi viðurkenninguna við annað tækifæri og undirgekkst Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri það fúslega.

Ungmennin fengu hvatningu af ýmsu tilefni, svo sem fyrir góða ástundun í námi, íþróttum og félagsstörfum, dugnað og þolgæði í veikindum eða við ástvinamissi. Í orðum forsetans kom fram að líta bæri á þessar viðurkenningar sem hvatningu til allra ungmenna á svæðinu og að hver sá sem ekki væri bjartsýnn á framtíðina þyrfti aðeins að fara í gegnum listann yfir allt það unga fólk sem til greina koma að veita hvatninguna.

Eftirtalin ungmenni hlutu hvatningu forseta Íslands til ungra Íslendinga í Fjarðabyggð:

Aleksey Vitaliy Kolosov 10 ára, Reyðarfirði. Aleksey Vitaliy hefur jafnan lagt sig vel fram við námið og náð prýðilegum árangri. Aleksey hefur líka sýnt mikla staðfestu og hugrekki í baráttu við veikindi sín.

Ásgeir Páll Magnússon 13 ára, Fáskrúðsfirði. Ásgeir Páll er mjög samviskusamur og duglegur nemandi, prúður í samskiptum við aðra, kappsfullur knattspyrnumaður og var einn af vinningshöfum í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2012.

Bergþóra Ósk og Hanna Líf Arnarsdætur 14 ára, Stöðvarfirði. Þær systur hafa tekist á við sáran ástvinamissi af miklu æðruleysi og mæta lífinu með opnum og jákvæðum huga.

Birkir Freyr Andrason 14 ára, Neskaupstað. Birkir Freyr æfir bæði fótbolta og blak af miklum dugnaði og keppir í báðum greinum, ekki bara með jafnöldrum sínum heldur líka eldri félögum. Hann er líka duglegur og samviskusamur námsmaður.

Draumey Ósk Ómarsdóttir 15 ára, Reyðarfirði. Draumey Ósk er fróðleiksfús og hugmyndarík, samviskusöm og metnaðarfull í námi og hefur einnig tekið virkan þátt í félagsstörfum.

Elísabet Eir Hjálmarsdóttir 12 ára, Fáskrúðsfirði. Elísabet Eir hefur sýnt mikla þrautsegju í námi sínu og sigrast á mörgum hindrunum, er dugleg og samviskusöm í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur og er virk í íþróttum.

Eva Dröfn Jónsdóttir 13 ára, Fáskrúðsfirði. Eva Dröfn er samviskusöm og drífandi íþróttakona í sundi og fótbolta, duglegur námsmaður og hefur auk þess stundað tónlistarnám í mörg ár, bæði gítarnám og söngnám. Hún var valin í úrslitakeppni Nótunnar sem fram fór í Hörpunni.

Guðrún Edda Gísladóttir 13 ára, Eskifirði. Guðrún Edda er samviskusöm og hugsar vel um nám sitt og annað sem hún ber ábyrgð á, er vandvirk og iðin, með hlýja nærveru og með kurteisi og tillitssemi sýnir hún gott fordæmi öllum þeim sem með henni starfa. Fas hennar og ljúfleg framkoma er öðrum til eftirbreytni.

Jóhannes Kristinn Hafsteinsson 15 ára, Stöðvafirði. Jóhannes Kristinn er mjög virkur í félagsstarfi og er alltaf fús að taka að sér þau verk sem þarf að vinna, er jákvæður og lífsglaður, stundvís og áreiðanlegur.

Jónas Þórir Þrastarson 10 ára, Reyðarfirði. Jónas Þórir er jákvæður og lífsglaður, prúður í samskiptum öllum og lætur ekki glímu við erfiðan sjúkdóm hindra sig í námi og félagslífi.

Kristrún Thanyathon Rangsiyo 13 ára, Neskaupstað. Kristrún er öflugur námsmaður, jafnt á bókina sem og í námi sínu í Tónskóla Neskaupstaðar. Hún er líka afar virk í íþróttum.

Patrycja Rymon–Lipinska 13 ára, Eskifirði. Patrycja er efnileg myndlistarkona þrátt fyrir ungan aldur, ágæt söngkona og öflug í öllum listum. Þá hefur Patrycja náð prýðilegum tökum á íslenskri tungu og sinnt námi sínu af stakri prýði.

Sigfús Valur Guðmundsson 11 ára, Móafirði. Sigfús Valur er tápmikill og duglegur, hefur sigrast á ýmsum erfiðleikum, verið jákvæður í allri framgöngu og sinnt námi sínu af samviskusemi.

Sóley Arna Friðriksdóttir 14 ára, Eskifirði. Sóley Arna er kraftmikill nemandi, jafnt í grunnskóla sem í tónlist, virk í stjórn félagslífsins innan skólans sem og í félagsmiðstöðinni Knellunni þar sem hún aðstoðar við starf yngri barna. Þá er Sóley virk í starfi kirkjunnar fyrir yngri börn.

Þorvaldur Marteinn Jónsson 15 ára, Neskaupstað. Þorvaldur Marteinn er mikill íþróttamaður, stundar skíðaíþróttina, knattspyrnu og blak af kappi. Hann er fylginn sér og ákveðinn ungur drengur. Þorvaldur er einnig mjög góður námsmaður og sýnir leiðtogahæfileika í sínum bekk.

hvatning forseta 3hvatning forseta 4hvatning forseta 5hvatning forseta 2

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.