Frystihúsi breytt í samkomusal fyrir Herrakvöld: Öll helstu leiktæki karlmanna til sýnis

herrakvold frystihus rfj skerptHárstofa Sigríðar stendur fyrir Herrakvöldi í gamla frystihúsinu á Reyðarfirði á föstudaginn kemur. Eigandinn segir hugmyndin að kvöldin hafi kviknað að loknu vel lukkuðu konukvöldi. Spennandi verði að sjá hvort karlakvöldið toppi það.

„Hugmyndin kviknaði eftir konukvöld sem við héldum 1. mars síðastliðinn,“ segir Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir sem rekur hárstofuna.

„Við vitum ekkert hvað það mæta margir gestir. Það mættu um 200 konur á konukvöldið og nú er bara að vita hvort karlmennirnir toppi það.“

Í vikunni hafa staðið yfir framkvæmdir í gamla frystihúsinu til að breyta því í sýningarsal. Sigríður segir að til sýnis verði „öll helstu leiktæki karlmanna, jeppar, snjósleðar, fatnaður fyrir útivistina, mótorhjól og starfsemi ýmissa klúbba verður kynnt.“

Meðal skemmtiatriða er frumsýning á landsbyggðinni á 2014 árgerðinni af Arctic Cat vélsleðanum en heiðursgestur kvöldsins er Ólafur Bragi Jónsson, nýkrýndur heimsmeistari í forfæru.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.