„Hvergi annars staðar en á LungA gæti þessi skipulagða sköpunaróreiða verið möguleg“

9327654755 d02ec63b30 bListahátíðinni LungA er lýst sem „litlum gimstein á hjara veraldar“ í umfjöllun í erlendu vefriti um hönnun, menningu og aðra flotta hluti. Blaðamaður segir langa og erfiða ferð til Seyðisfjarðar vel þess virði.

Greinin birtist í vefritinu Cool Hunting sem er með útsendara á sínum vegum um víða veröld. Þeir hafa það verkefni að leita uppi spennandi hluti í hönnun, menningu og listum.

Töluvert er lagt í lýsingar á umhverfi staðarins sem sé umkringdur háum fjöllum sem séu í senn ógnvekjandi og traustvekjandi. „Það er ekkert þarna þannig að náttúrunni tekst að róa sálina og fóstra hinn skapandi huga.“

Blaðamaður Cool Hunting fylgir hátíðinni eftir dag fyrir dag og rekur það hvernig bærinn lifnar við um leið og hún hefst. Smiðjurnar renni saman og við bætist litlir viðburðir heimamanna. Sífelldar áskoranir bíði gesta og þeir séu hvattir til að taka þátt í listviðburðum. „Hvergi annars staðar en á LungA gæti öll þessi skipulagða sköpunaróreiða verið möguleg.“

Fjörið byrjar fyrir alvöru á fimmtudegi þegar fólk hvaðanæva af landinu – og reyndar heiminum – flykkist til Seyðisfjarðar. Gleðskapur sé út um allan bæ og öldurhúsin troðin. Að lokinni lokahátíðinni á laugardegi skemmti sér allir saman þar til sólin birtist á ný – rétt nýhorfin á bakvið fjöllin.

„LungA er töfrandi lífreynsla sem er fullkomlega virði hinnar löngu ferðar á þessar dularfullu slóði. Þessi kraftmikla samsetning náttúrunnar í kring, þorpsins, fólksins og listarinnar hafa skapað lítinn gimstein á hjara veraldar.“

Mynd: LungA

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.