Fimmtíu þátttakendur á Brennómóti

sinalco brennibolti silent WEBUm fimmtíu þátttakendur á öllum aldri tóku þátt í Brennómóti sem haldið var á Egilsstöðum í síðustu viku í tengslum við Ormsteiti. Lið Snap sigraði á mótinu.

Í útsláttarkeppninni spiluðu liðin sem voru samansett af fjölskyldumeðlimum á móti hvort öðru og svo lið fullorðna fólksins á móti hvort öðru.

Dekkjahöllin sigraði Landsbankann en var síðan slegin út af Ormunum (liði samansettu af strákum á aldrinum 8-13 ára). Ormarnir spiluðu síðan úrslitaleikinn við lið sem kallaði sig Snap og fór Snap með sigur af hólmi.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.