Samfélagsorða JCI; Hvatningarverðlaun fyrir ungmenni

jci10Á komandi vikum fer af stað verkefni á vegum JCI Austurlands sem nefnist Samfélagsorðan.

JCI stendur fyrir Junior Chamber International og er alþjóðleg hreyfing fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 40 ára sem hefur áhuga og metnað til þess að efla hæfileika sína og hafa jákvæð áhrif í kringum sig.

Samfélagsorðan er verkefni sem ætlað er að virkja ungmenni til virkrar þátttöku í jákvæðu og uppbyggjandi félagslífi. Samfélagsorðan byggist á því að ungmennin hafa aðgang að lista yfir fjölda tómstundamiðaðra markmiða sem stendur þeim til boða – svo sem þátttaka í íþrótta- og félagastarfi, ýmiss konar námskeið, útivist eða verkefni sem þau hefja að eigin frumkvæði.

Þegar hverju markmiði er náð mun leiðbeinandi þess verkefnis gefa umsögn og staðfestingu í þar til gert „vegabréf" sem hver og einn nemandi fær eintak af. Þegar nemendurnir hafa svo náð að ljúka við ákveðinn lágmarksfjölda markmiða munu þeir fá afhenta Samfélagsorðuna ásamt viðurkenningu á hátíðlegri athöfn sem stefnt er á að verði í lok hvers skólaárs.

Til að byrja með verður markhópurinn ungmenni í 8.-10. bekkjum grunnskóla Fjarðabyggðar og markmiðið er að hvetja þau til virkrar þátttöku í jákvæðu og uppbyggjandi félagslífi ásamt því að auka samfélagsvitund þeirra.


Fjöldi meðlima fer vaxandi á ný

Þegar sagan er skoðuð kemur í ljós að þátttaka og þá sérstaklega nýliðun í félagasamtökum hefur dalað töluvert síðastliðna áratugi. Sem dæmi má nefna að árið 1985 voru rúmlega 2.000 meðlimir í JCI hreyfingunni á Íslandi í flest öllum byggðarkjörnum landsins en í dag eru þeir einungis um 100. Hvað veldur þessari þróun? Er aukið sjónvarpsgláp, tölvuleikjanotkun, samfélagsmiðlar og annríki nútíma samfélags að hafa þessi áhrif? Það er ómögulegt að segja. Fjöldi JCI meðlima á Íslandi hefur hins vegar farið vaxandi síðastliðin ár m.a. vegna nýrra og spennandi verkefna eins og þess sem nú er að fara í gang.

Kynningarfundur fyrir verkefnið verður í Sómasetrinu 31. ágúst klukkan 18:00. Þar geta áhugasamir geta komið og kynnt sér verkefnið og tekið þátt í uppbyggingu þess.

Boðið verður uppá veitingar á fundinum. Nánari upplýsingar og skráning fer fram hjá Davíð Brynjari Sigurjónssyni, verkefnastjóra Samfélagsorðunnar og varaforseta JCI, gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 660-2673/867-0349.

jci1jci2jci10

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.