Alberti og Serge þakkað fyrir framlag sitt til menningararfleifðar Frakka á Fáskrúðsfirði

SergeogAlbertPáll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, þakkaði Serge Lambert og Alberti Eiríkssyni fyrir einstakt framlag þeirra til menningararfleifðar Frakka á Fáskrúðsfirði í móttöku sem fram fór á Frönskum dögum um helgina.

Albert Eiríksson stofnsetti og rak um árabil safnið Fransmenn á Íslandi, auk þess sem hann var á meðal frumkvöðla sumarhátíðarinnar Franskra daga. Sveitarfélagið hefur nú tekið við safnrekstrinum, sem sameinaður var nýja safninu, Frakkar á Íslandsmiðum, sem staðsett er í Læknishúsinu, gegnt franska spítalanum.

Framlag Serge Lambert felst í tveimur hagleikslíkönum af nafntoguðum frönskum skonnortum á Íslandsmiðum, sem hann hefur fært Fjarðabyggð að gjöf. Annað er af sjúkraskipi sem Lambert smíðaði sjálfur frá grunni og afhenti Jóni Birni Hákonarsyni, forseta bæjarstjórnar, í tilefni af opnun frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði á síðasta ári. Það líkan er nú til sýnis í anddyri safnsins.

Það síðara færði hann svo Páli Björgvini í móttöku sem fram fór nú nýlega í Sjólyst, litlu húsi sem stendur í flæðarmálinu á Fáskrúðsfirði og reist var á öndverðri 20. öld, þegar enn var gangur í útgerð Frakka frá bænum. Það líkan fann Lambert illa á sig komið í Frakklandi og gerði upp á eigin kostnað líkt og fyrra líkanið sem hann stóð einnig sjálfur straum af.

Páll Björgvin sagði að sér væri það mikið ánægjuefni að geta fært þeim Serge og Alberti þakklætisvott fyrir óeigingjörn störf þeirra og hlýhug í garð sveitarfélagsins.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.