Skemmtileg uppákoma á Teigarhorni á degi Íslenskrar náttúru

teigarhorn  1 Í tilefni af degi íslenskrar náttúru í dag þriðjudaginn 16. september, mun Brynja Davíðsdóttir, umhverfis- og náttúrufræðingur og landvörður að Teigarhorni í Berufirði, taka á móti gestum og gangandi.

Brynja tekur á móti áhugasömum kl. 16:00 og sýnir safn geislasteina á Teigarhorni auk þess að fræða gesti um fjölþætt starf landvarðar á hinu friðlýsta svæði. Í framhaldi verður farið í gönguferð þar sem fyrirhugaður göngustígur verður lagður um nærsvæðið og um leið sagt frá því helsta sem fyrir augu ber er varðar fjölbreyttar náttúru- og menningarminjar á Teigarhorni.

Íbúar og aðrir sem hafa áhuga eru hvattir til að heimsækja Teigarhorn á þessum degi og upplifa á fræðandi hátt eina af okkar helstu náttúruperlum á svæðinu.

Mynd: Af vef Djúpavogs

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.