Vopnafjörður keyrir enn á varaafli

Ekki hefur enn tekist að gera við bilun á Vopnafjarðalínu og því enn keyrt á varaafli. Reikna má með að sú staða haldist í allan dag.

Búið er að staðsetja bilunina en vegna veðurs hefur ekki verið hægt að hefja viðgerðir. Búist er við að díselkeyrsla verði haldið áfram fram eftir degi og jafnvel áfram til morguns.

Hjá Svæðisvakt Rarik fengust þær upplýsingar í hádeginu að verið sé að finna lausn á því hvenær hægt verði að gera við bilunina. Það er enn allhvasst á svæðinu sem bilunin er.

Rarik vonast til að hægt verði að gera við bilunina í kvöld eða nótt. Haldinn verður stöðufundur um málið með Landsneti síðar í dag þar sem næstu skref verða ákveðin.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.