Undirbúa nýjan veitustokk fyrir Búðará

Í undirbúningi er að koma fyrir nýjum veitustokk fyrir Búðará við Hafnargötu og sömuleiðis að koma fyrir ræsi undir Hafnargötu fyrir nýjan farveg frá varnargörðunum við slippsvæðið. Þar er hönnun komin vel á veg og unnin í samstarfi við Vegagerðina.  

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Þar segir einnig að í Botnahlíð er, eftir samtal við íbúa, einnig í undirbúningi að koma fyrir veituskurði og varnarkanti fyrir ystu húsin sem verður í líkingu við þær varnir sem þar hefur verið komið fyrir.

„Á Seyðisfirði var uppsöfnuð úrkoma rúmlega 100 mm frá laugardegi fram á miðvikudag sem er sú mesta sem komið hefur frá skriðuhrinunni í desember. Auk rigningar var einnig leysing,“ segir í tilkynningunni.

„Mælitæki til þess að vakta aurskriðuhættu í hlíðinni, sem komið hefur verið fyrir á undanförnum vikum, reyndust vel. Mælingar í borholum í Neðri-Botnum sýndu nokkuð hraða hækkun á vatnsborði á sunnudag og varð vatnshæð svipuð og hún var í lok desember.

Nú er vatnshæð farin að lækka aftur. Mælingar á hreyfingu jarðlaga með alstöð og sjálfvirkum GPS mælum sýna enga markverða hreyfingu. Það er góðs viti að þetta veður skuli ekki hafa valdið óstöðugleika í jarðlögum hlíðarinnar og þess vegna er ekki reiknað með því að það þurfi að grípa til sambærilegra rýminga á Seyðisfirði nema úrkoma og leysing verði nokkru meiri en nú varð.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.