Þrír Japanir fylgjast grannt með loðnunni

Þrír fulltrúar japansks loðnukaupanda fylgjast grannt með loðnuvinnslunni í Neskaupstað. Þar á meðal er Takaho Kusayanagi sem venjulega er kallaður Kusa.

Fjallað er um málið á vefsíðu Síldarvinnslunnar en þar segir að í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað hefur að undanförnu verið fryst loðna úr norskum loðnuskipum allan sólarhringinn.

„ Ég kom fyrst til landsins fyrir um 30 árum og fylgdist í upphafi mest með vinnslu í Vestmannaeyjum, Grindavík, Keflavík og Þorlákshöfn. Undanfarin ár hef ég verið í Neskaupstað. Þar þekki ég orðið allar aðstæður og fólkið þar eru kunningjar mínir og vinir,“ segir Kusa í samtali á vefsíðunni.

„Það er afskaplega gott að koma til Neskaupstaðar og starfa þar. Nú erum við þrír hérna frá fyrirtækinu sem ég starfa hjá.“.
 
Þegar Kusa er spurður út í loðnuleysið tvö síðustu ár segir hann: „Það voru dapurleg ár. Ég veit að loðnuleysið hafði slæm áhrif á mörg fyrirtæki hér á Íslandi og sömu sögu er að segja frá Japan. Fyrirtækin þar sem vinna Íslandsloðnuna lentu í verulegum erfiðleikum. Japanir söknuðu þess mjög að fá ekki íslenska loðnu. Loðnan er vinsæll matur í Japan.“

Fram kemur í máli Kusa að loðnan er mest söltuð og þurrkuð í Japan og síðan hituð á pönnu eða í ofni. Loðnan er borðuð eins og hvert annað snakk og oft drukkinn bjór með. Síðan eru loðnuhrognin einnig eftirsóknarverð en þau eru til dæmis mikið notuð í sushi.

„Við viljum helst hafa loðnuna með yfir 13% hrognafyllingu. Sú loðna sem veiðst hefur núna hefur hingað til einungis verið með 9-10% hrognafyllingu þannig að við bíðum eftir að hrognafyllingin aukist og það mun gerast fljótlega,“ segir Kusa

„Við fylgjumst daglega með þeirri loðnu sem berst að landi og bíðum eftir því að hún verði hæf fyrir okkar markað. Fram að því er framleitt fyrir aðra markaði.“

Mynd: Kusa að störfum í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Líneik Haraldsdóttir er með honum á myndinni. Mynd Hákon Ernuson

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.