Sömdu um rekstur Fab Lab Austurland

Verkmenntaskóli Austurlands og Fjarðabyggð, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa undirritað samninga um rekstur Fab Lab Austurland.

Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að eð þessum samningum verður Verkmenntaskóla Austurlands gert kleift að setja í gang starfsemi Fab Lab Austurland með sambærilegum hætti og var á árunum 2014 – 2016.
„Þetta er mikið fagnaðarefni fyrir samfélagið í Fjarðabyggð sem og á öllu Austurlandi, hvort sem horft er til almennings, frumkvöðla og fyrirtækja eða menntastofnana á svæðinu,“ segir á vefsíðunni.

Markmiðið með starfsemi Fab Lab smiðjunnar verður enn sem fyrr að auka þekkingu og leikni nemenda, kennara, almennings og innan atvinnulífs á persónumiðaðri nýsköpunarvinnu og stafrænum framleiðsluaðferðum.

Smiðjunni er einnig ætlað að styðja við þátttöku og áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum og auka tæknilæsi, skapandi starf og frumkvöðlamennt. Markmið verkefnisins er enn fremur að skapa vettvang fyrir þróun og prófun hugmynda og efla þannig samkeppnishæfni í nærsamfélagi.

Næstu skref lúta að því að ráða verkefnisstjóra fyrir smiðjuna en í kjölfar þess verðar dyr Fab Lab Austurland opnaðar að nýju.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar