Opna Hótel Valaskjálf um helgar

Hótel Valaskjalf hefur verið opnað um allar helgar með tilboðum í mat og afþreyingu. Samhliða því verður veitingastaðurinn Glóð opinn fimmtudag til laugardaga frá kl. 18 til kl. 20 og Ölstofan verður opin sömu daga frá kl. 17 til kl. 23.


Þetta kemur fram hjá Sigrúnu Jóhönnu Þráinsdóttur framkvæmdastjóra 701 Hotels sem rekur fyrrgreinda staði.

„Hvað nánustu framtíð varðar reiknum við með að Íslendingar verði í meirihluta ferðamanna hér austanlands að minnsta kosti framan af sumri eins og staðan er núna,“ segir Sigrún Jóhanna.

Af öðrum breytingum hjá 701 Hotels má nefna að Salt Café & Bristo opnar nú klukkan 9 alla daga og er boðið upp á nýbökuð brauð og bakkelsi á staðnum frá þeim tíma.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar