Öxi opnuð í lok dags

Stefnt er á að opna fyrir umferð um veginn yfir Öxi síðar í dag. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa unnið að opnun vegarins í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni ætti vegurinn að verða fær fyrir bíla búna til vetraraksturs í dag. Staðan skýrist nánar á næstu klukkutímum. 

Búið er að moka veginn yfir heiðina, en nokkur svell eru á leiðinni sem rífa þarf upp.

Breiðdalsheiði var opnuð í morgun en þar eru hálkublettir.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.