Múlaþing samþykkir jafnréttisáætlun

Sveitarstjórn Múlaþings hefur samþykkt Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins. Jafnréttisáætlun er mikilvægt verkfæri til að vinna að jafnri stöðu íbúanna á öllum sviðum samfélagsins.


Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að í áætluninni felst viðurkenning á því að grípa þurfi til sérstakra aðgerða til að raunverulegt jafnrétti náist. Í henni er tekið á hvernig unnið skal að kynja- og jafnréttissjónarmiðum á öllum sviðum í starfsemi sveitarfélagsins. Tiltekin eru markmið og aðgerðir til að stuðla að jafnrétti og jafnri meðferð við ráðstöfun fjármagns, í þjónustu sveitarfélagsins og í starfsmannamálum.

“Múlaþing sem sveitarfélag er í góðri stöðu til að vinna að jafnrétti í samfélaginu bæði vegna nálægðar við íbúana og þess þríþætta hlutverks sem það hefur, sem stjórnvald, sem vinnuveitandi og sem þjónustuveitandi. Virk áætlun um jafnréttismál hjá sveitarfélaginu, þar sem unnið er að jafnrétti á öllum þessum sviðum, stuðlar að réttlátara og eftirsóknarverðara samfélagi fyrir alla,” segir á vefsíðunni en þar má sjá áætlunina í heild.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.