Börkur með 1100 tonn, hrognafyllingin komin í 17%

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1100 tonn af loðnu. Hrognafyllingin var 17% í þessari loðnu sem telja verður mjög gott. Eins og kunnugt er af fréttum er lágmarkskrafan 13% fyrir japönsku kaupendurnar.

Á vefsíðu Síldarinnslunnar segir að byrjað var að vinna úr aflanum um hádegi en þá var lokið við að vinna 900 tonn sem Beitir NK kom með í gær.

„Við fengum aflann í fjórum köstum í Meðallandsbugtinni. Tókum þrjú köst í gær og eitt 200 tonna kast á mánudagskvöld. Þetta er fínasta loðna; hrygnuhlutfall er gott, 17% hrognafylling og átan einungis 0,3. Þetta hlýtur að vera gott í Japanann,“ segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki í spjalli á vefsíðunni um túrinn.

„Það var ekki mikið að sjá af loðnu þarna í bugtinni í gær. Það var mun meira að sjá á mánudaginn. En þarna eru öll skipin að berja á þessu. Ég tel að þetta sé alls ekki fremsti hluti loðnugöngunnar og það eigi eftir að gjósa upp loðna í Háfadýpinu eða við Eyjar á næstu dögum. Annars er loðna mjög víða, meðal annars hérna fyrir austan,“ segir Hjörvar.

Mynd: Hugi Freyr Ólason.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.