Boða til íbúafundar fyrir Seyðfirðinga

Íbúafundur fyrir Seyðfirðinga verður haldinn á Facebook í dag klukkan 16:00.

Þettta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála og gefa íbúum kost á að koma á framfæri fyrirspurnum sem veitt verða svör við á fundinum sé þess kostur. Fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings https://www.facebook.com/mulathing

Hægt verður að leggja inn spurningar á fundinum en einnig má senda inn spurningar fyrir fundinn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í Herðubreið á Seyðisfirði og Egilsstaðaskóla.

Dagskrá

Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:
Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjórinn á Austurlandi
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Jens Hilmarsson vettvangsstjóri
Harpa Grímsdóttir eða annar starfmaður frá Veðurstofunni
Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannvarnardeild ríkislögreglustjóra
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, sérfræðingur hjá almannavörnum

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.