Beitir og Börkur í samstarfi á loðnumiðunum

Síldarvinnsluskipin Beitir og Börkur eru komin á loðnumiðin. Samkomulag hefur verið gert við áhafnir skipana um samstarf við veiðarnar þannig að loðnan komi sem ferskust í land.

Þetta kemur fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að skipin héldu til loðnuveiða í gær. Veðrið hefur verið heldur óhagstætt á miðunum en í morgun hafði það heldur gengið niður.

„Við erum á Meðallandsbugtinni og það er víða eitthvað að sjá. Við erum að skoða þetta núna,“ segir Tómas Kárason skipstjóri á Beiti í samtali við vefsíðuna.

„Hér er heldur leiðinleg sunnanátt en það er vel hægt að kasta þannig að veðrið háir okkur ekki.“
 
Hvað fyrrgreint samkomulag varðar segir að það felst í því að skipin skipuleggi veiðarnar þannig að þau skiptist á að koma með sem ferskastan afla að landi hverju sinni til að tryggja sem mest gæði framleiðslunnar.

„Þess vegna er gert ráð fyrir að afla verði dælt á milli skipanna á miðunum ef á þarf að halda. Áhafnirnar munu síðan skipta aflaverðmætunum á milli sín. Samstarf sem þetta hefur ekki verið reynt við loðnuveiðar áður en það gafst vel hjá Síldarvinnsluskipunum á makrílvertíðinni sl. sumar,“ að því er segir á vefsíðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.