Áfram óbreytt rýming á Seyðisfirði

Áfram er í gildi óbreytt rýming á því svæði sem kynnt var fyrir áramót.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Þar segir að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórinn á Austurlandi ásamt vettvangsstjórn og ráðgjöfum fundaði nú í morgun vegna hreinsunarstarfs á Seyðisfirði.  Í dag ganga yfir hlýindi og því verður ekki unnið að fullum krafti innan þess svæðis sem stóra skriðan féll á 18. desember síðastliðinn. 

Hreinsunar- og viðgerðarstarf verður unnið utan þess svæðis og búið í haginn vegna vinnu komandi viku.  Þá er veðurútlit gott og má búast við að vinna fari af stað af fullum krafti á morgun.

Þrátt fyrir að upptakasvæði skriðanna sé ekki innan rýmingarreits, þá er áréttað að þar getur verið hættulegt að fara um vegna lausra jarðlaga, skriðubrúna og sprungna sem hafa myndast.

Fylgst verður með aðstæðum í dag, farið upp í Botnabrún og sprungur skoðaðar, og gerðar mælingar á hreyfingu jarðlaga. Engin hreyfing mældist í morgun en hún hefur verið lítil sem engin undanfarna viku.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.