07. nóvember 2025, 06. nóvember 2025, 06. nóvember 2025
„Mjög góðar fréttir fyrir Norðausturland“, Boða aðgerðir í orkumálum á Norðausturlandi, Byrjað strax á nýrri línu sem tryggir hringtengingu Vopnafjarðar og Þórshafnar
Oddviti hreppsnefndar Vopnafjarðar segir áform um uppbyggingu dreifikerfis milli Vopnafjarðar, Þórshafnar og Kópaskers, sem kynnt voru í gær, vera framfaraskref fyrir svæðið allt. Hann óskar nágrönnunum á Þórshöfn til hamingju.
,Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fulltrúar Landsnets og Rarik undirrita í dag viljayfirlýsingu um aðgerðir í orkumálum á Norðausturlandi. Yfirlýsingin kemur í kjölfar greiningar á stöðunni þar sem skort hefur öfluga tengingu og hringtengingu. Málið hefur helst strandað á því hver greiði fyrir framkvæmdina.
,Framkvæmdir hefjast strax á næsta ári við lagningu raflínu milli Vopnafjarðar og Þórshafnar. Báðir staðir fá þar með rafmagn úr tveimur áttum í stað einnar í dag. Tengingin verður styrkt síðar með öflugri línu sem lögð verður frá Vopnafirði til Kópaskers um Þórshöfn.