Nú hefur fólk sýnt sitt rétta andlit
Takk minnihluti sveitarstjórnar Múlaþings fyrir að standa með lýðræðinu og leggja fram tillögu um að standa með 75% íbúa Seyðisfjarðar, sem eru á móti sjókvíaeldi í Seyðisfirði, sem var reyndar felld af meirihlutanum. Auðurinn liggur í fólkinu. Vonum að Múlaþing átti sig á því og komist á þá braut að vera ávallt í fararbroddi sveitarfélaga hvað lýðræðisleg vinnubrögð varðar.Öxi, lífæð samfélagsins
Nú þegar það eru að verða þrjú ár frá fæðingu Múlaþings hefur orðið æ sýnilegra hversu mikilvæg Öxi er fyrir eðlilegt samstarf á milli kjarna sveitarfélagsins.Fjarðarheiðargöng og aðalskipulag Egilsstaða og Fellabæjar
Nefndir og ráð Múlaþings og sveitarstjórn hafa látið að vilja ríkisvaldsins og samþykkt legu „Suðurleiðar“ frá væntanlegum Fjarðarheiðargöngum og dugar þeim þar samanburður á eplum og appelsínum. Farið hefur verið þar að einu og öllu að vilja Vegagerð ríkisins án nokkurrar skoðunar á því sem betur mætti fara til hagsbóta fyrir byggðaþróun á vegamótum.„Ef þú getur ekki verið kurteis, verð ég að biðja þig um að fara“
Í kjölfar af Alþjóðlega baráttudegi kvenna sem haldinn var 8. mars síðastliðinn fannst mér kjörið að setja saman nokkur orð og datt mér þá í hug grein sem Jón Gnarr ritaði fyrir nokkrum árum um freka karlinn. Þar tókst honum að fanga vel þá ofbeldismenningu sem felst í því að hjóla í manneskjuna en ekki málefnin, sýna mátt sinn og megin með einvörðu sína skoðun að vopni og gera lítið úr þeim sem eru ósammála. Svo ég vitni í orð Jóns: