Á fimmtudag hefst opið útboð sérleyfa til leitar og vinnslu olíu og gass á Drekasvæðinu norðaustan Íslands. Er útboðið auglýst í stjórnartíðindum Evrópusambandsins og stendur fram í miðjan maí.
Miklar breytingar voru kynntar á heilbrigðiskerfi landsmanna í dag. Þær hafa einkum þau áhrif á Austurlandi að til enn frekara samstarfs kemur á milli Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, en það hefur verið töluvert síðustu árin. Skipulagsbreytingar hafa verið í gangi hjá HSA allan síðasta áratug og falla þær að kynntum breytingum. Ásta Möller, alþingismaður (D) og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis sagði á fundi á Egilsstöðum í dag að heilbrigðisþjónusta á Austurlandi hefði batnað á síðustu árum, samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Ágústa Þorkelsdóttir á Refsstað í Vopnafirði skrifar:Merkilegt hvað ástand síðustu vikna hefur oft orðið til þess að ég hef minnst ömmu minnar heitinnar. Stundum hefur mér fundist ég heyra hana reka upp sinn forðum fræga dillandi hlátur, séð hana slá sér á lær og taka bakföll af undrun yfir þeim makalausu fréttum sem fjölmiðlar ryðja yfir okkur landsmenn nokkrum sinnum á dag, dag eftir dag, viku eftir viku.
Smári Geirsson,fyrrverandi formaður SSA og Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri SSA, skrifa:Dr. Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor ritaði grein í Austurgluggann sem birtist 27. nóvember síðastliðinn. Þar opinberar hann það viðhorf sitt að virkjunar- og álversframkvæmdir á Austurlandi séu í reynd kveikiefnið sem hratt margumræddri kreppu af stað. Undirritaðir svöruðu Þórólfi og birtist svargreinin í Austurglugganum viku síðar. Nú hefur Þórólfur stungið niður stílvopni sínu á ný og sent frá sér greinina Fullar hendur smjörs? en hún hefur einungis birst á heimasíðu Austurgluggans þegar þetta er ritað.
Austurglugginn notaði tímann um jólin til að taka til eins og fleiri. Tekið var til í myndasöfnum blaðsins frá seinasta sumri og þeim komið á vefinn. Fleiri myndasöfn eiga enn eftir að bætast við en eftirfarandi söfn eru nýkomin inn:
Nýr Austurgluggi kom út í dag. Meðal forvitnilegs efnis er umfjöllun um stöðu Heilbrigðisstofnunar Austurlands, auk annarra frétta og myndir af fyrsta nýja Austfirðingi ársins og öðrum nýburum sem fæðst hafa fyrstu daga hins nýja árs. Þá er Hallgríms Kjartanssonar, bónda á Glúmsstöðum II í Fljótsdal minnst, en hann lést í desember.
Austurglugginn er fréttnæmt vikublað fyrir alla Austfirðinga og fæst á öllum betri blaðsölustöðum í fjórðungnum. Áskriftasími er 477-1571.
Farþegum í innanlandsflugi milli Reykjavíkur og Egilsstaða fækkaði um 15% árið 2008 og voru um hundrað og fjórtán þúsund talsins. Flugfélag Íslands segir þá fækkun hafa verið nokkuð fyrirséða, vegna loka á virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka.
420.000 farþegar flugu með Flugfélagi Íslands í fyrra og er það annað stærsta ár félagsins frá upphafi.