Stefanía Kristinsdóttir býður sig fram í 2.-3. sæti Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi. Stefanía hefur starfað sem framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands frá ágúst 2007. Hún er með BA gráðu í heimspeki auk þess sem hún er rekstrarfræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún býr með fjölskyldu sinni á Egilsstöðum.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sækist eftir að skipa efsta sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum í vor. Höskuldur segist hafa fengið áskoranir um að gefa aftur kost á sér og að hann sækist eftir að leiða lista framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér 1. sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Kristján Þór skipaði 1. sæti á lista flokksins í kosningunum 2007.
Guðrún Katrín Árnadóttir frá Seyðisfirði býður sig fram í 2.- 3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Guðrún Katrín hefur starfað að sveitarstjórnarmálum á Seyðisfirði og er nú formaður Samfylkingarfélags Seyðisfjarðar, auk þess sem hún situr í flokksstjórn Samfylkingarinnar og í kjördæmisráði Norðausturkjördæmis.
Herdís Björk Brynjarsdóttir 25 ára, náms- og verkakona á Dalvík, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norð-Austurkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 3.-4. sæti í prófkjörinu. Herdís Björk vann sem verkstjóri í frystihúsi Samherja á Dalvík í rúm þrjú ár en vinnur nú almenn störf samhliða námi.
Málþing á vegum Tengslanets austfirskra kvenna um kosti og galla ESB-aðildar Íslands verður haldið á Hótel Héraði, Egilsstöðum kl. 14-17 nú á laugardag. Ýmsum hliðum aðildar verður velt upp og skoðað hvaða áhrif hún myndi hafa á Austurland. Málþingið er öllum opið.
Gísli Baldvinsson, náms- og starfsráðgjafi á Akureyri, sækist eftir 4.-6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í næstu kosningum. Gísli hefur starfað lengi að félagsmálum. Hann var formaður Kennarafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Kennarasambandsins. Þá var hann formaður sambands karlakóra.
Björgvin Valur Guðmundsson býður sig fram í 5.- 6. sæti í Reykjavík. Hann segist í tilkynningu hafa ákveðið að gefa kost á sér í 5.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar. „Þrátt fyrir að vera búsettur á Stöðvarfirði býð ég mig fram í Reykjavík og vil með því undirstrika nauðsyn þess að allt landið verði eitt kjördæmi," segir Björgvin Valur.
Pétur Guðvarðsson skrifar: Stundum er því haldið fram að ríkisstjórnin hafi Alþingi í vasanum, að Alþingi sé ekki annað en afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórnina, hún ráði öllu, af því að Alþingi samþykkir allt sem ríkisstjórnin leggur fyrir það.