Hljómsveitin Árstíðir og trúbadorarnir Svavar Knútur og Helgi Valur munu í sumar gera víðreist um fósturjörðina og koma við í helstu bæjum og sveitum hringinn í kringum landið. Gengur tónleikaferðalagið undir nafninu ,,Hver á sér fegra föðurland?" en listamönnunum þykir einmitt mjög vænt um landið og vilja hvetja landsmenn til að skipuleggja ferðalög sín innanlands í sumar. Spilað verður miðvikudaginn 8. júlí í Egilsstaðakirkju kl. 20 og á rokkhátíðinni Eistnaflugi í Neskaupstað daginn eftir, 9. júlí.
Óbyggðanefnd tekur engin ný svæði til meðferðar næstu tvö árin og
fjármálaráðherra lýsir ekki kröfum um þjóðlendur. Þetta er hluti af
sparnaðarráðstöfunum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag.
Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi, JEA, var sett í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum í dag í undurblíðu veðri. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, setti hátíðina með ávarpi og sagði hana njóta mikils velvilja sveitarfélagsins. Jón Hilmar Kárason, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir jazzhátíðina verða glæsilega og aldrei hafi hún verið eins löng og nú, eða í fimm daga. Mighty Marith and the Mean Men ásamt Einari Braga tróðu upp á sviði Tjarnargarðsins við góðar undirtektir gesta. JEA stendur yfir frá 24. til 28. júní og fer fram á fjórum stöðum á Austurlandi.
Björgunarsveitirnar Ársól Reyðarfirði, Brimrún Eskifirði og Hérað Egilstöðum sóttu í kvöld slasaðan vélsleðamann á Búðardalsheiði, Sá slasaði var við vatnaskil Áreyjardal og Brúardals og þurfti að bera hann um kílómetra leið niður að sjúkrabíl. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var maðurinn ekki mikið slasaður en aðstæður erfiðrar, brattar skriður og laus möl.
Fjarðabyggð og Höttur þurfa bæði suður á höfuðborgarsvæðið vegna leikja sinn í 16 liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu. Bæði drógust gegn úrvalsdeildarliðum. Höttur mætir Breiðabliki á Kópavogsvelli en Fjarðabyggð heimsækir Fylki á Árbæjarvöll. Leikið verður sunnudaginn 5. júlí.
Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, segir möguleika til vaxtar
fyrir dreifbýli og landbúnað til vaxtar innan Evrópusambandsins. Þessi
svæði hafi samt upplifað bæði þenslu og samdrátt síðan Finnar gengu í
Evrópusambandið.
Níu konur á Seyðisfirði hlupu tuttugu kílómetra í kvennahlaupi Sjóvár
og ÍSÍ í dag. Þetta var lengsta vegalengdin sem var í boði á landinu.
Hlaupið fór fram í tuttugasta sinn í dag.