Það á að vera gott að eldast á Íslandi

Meðalaldur Íslendinga og lífslíkur eru með þeim hæstu sem fyrirfinnast í Evrópu. Frá því á árinu 1988 hafa karlar hérlendis bætt við sig heilum sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. Þetta er ánægjuleg staðreynd sem segir okkur að hérlendis séu skilyrði til þess að eldast góð og samverustundum sem fjölskyldur hafa möguleika á að verja með sínu elsta fólki hafi fjölgað.

Aldurstala segir þó ekki alla söguna um líðan fólks eða aðbúnað en við sem samfélag hljótum að geta sammælst um það að við viljum að okkar fólk og við sjálf, þegar við náum vonandi háum aldri, getum elst með reisn og með það aðgengi að þjónustu sem við höfum þörf á, sniðna að okkar þörfum.

Það er því ánægjulegt að vita til þess að nú fer fram mikilvæg vinna þvert á ráðuneyti félags- og vinnumarkaðsmála og heilbrigðismála. Í vikunni fór fram opinn kynningarfundur um verkefnið Gott að eldast sem er metnaðarfullt verkefni þar sem félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra kynntu aðgerðaráætlun til næstu fjögurra ára um þjónustu við eldra fólk sem er ætlað að einfalda aðgengi að þjónustunni og bæta til muna lífsgæði okkar elstu þjóðfélagsþegna.

Til þess að gott sé að eldast fyrir öll hér á landi er nauðsynlegt að samþætta kerfin tvö sem fara með málefni eldra fólks: heilbrigðiskerfið annars vegar og félagslega þjónustu hins vegar. Þjónustan á ávallt að vera veitt á forsendum þess aldraða einstaklings sem á henni þarf að halda en til þess að það sé mögulegt er einnig nauðsynlegt að mikil og góð samvinna eigi sér stað á milli allra kerfa og sveitafélaga og ríkis.

Heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk er eitt af forgangsverkefnunum í stjórnarsáttmála VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, þar kemur fram að markmiðið er að eldra fólki sé tryggð örugg og öflug þjónusta. Með því að efla þverfaglegt samstarf í félags- og heilbrigðisþjónustu er hægt að tryggja að þjónusta sem veitt er auki lífsgæði og hamingju m.a. með forvörnum, heilsueflingu, samþættun þjónustu og áherslu á aukna virkni fólks.

Það verður mjög ánægjulegt að fylgjast með þessu verkefni sigla úr vör undir tryggri verkstjórn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra því öll viljum við geta hugsað með eftirvæntingu til efri áranna og við eigum að geta gert þær kröfur að samfélagið sem við höfum lagt okkur fram við að breyta og bæta á okkar ævi, reynist okkur vel á lokasprettinum. Það á að vera gott að eldast á Íslandi.

Höfundur situr á Alþingi fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í Norðausturkjördæmi.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.