Orkumálinn 2024

Laxeldi í Seyðisfirði má hindra!

Nýverið, sjö árum eftir upphaf laxeldisáforma í Seyðisfirði héldu forsvarsmenn eldisins loks upplýsingafund um sín áform. Þá voru 15 mánuðir síðan sveitarstjóri Múlaþings tók við undirskriftum 55% Seyðfirðinga sem mótmæltu laxeldinu afdráttarlaust.

Skipulagsstofnun hefur tíundað margt sem mælir gegn laxeldinu. Pólitísk öfl í Múlaþingi, önnur en VG, láta sem þau geti ekkert aðhafst varðandi framgang laxeldisáformanna, eða þora þau ekki?

Að þora að hafa skoðun

Framboð VG hefur eitt framboða í Múlaþingi lýst algjörri andstöðu við laxeldi í Seyðisfirði og líka vilja til að koma í veg fyrir það. Aðrir oddvitar telja sig ekkert geta aðhafst í þá veru. Er það misskilningur eða kannski fyrirsláttur, til að forðast slaginn? Vissulega hefur Múlaþing ekki skipulagslegt forræði yfir áformuðum kvíastæðum, nokkuð sem kjörnir fulltrúar telja allir óeðlilegt. Við njótum samt skoðanafrelsis og það að hafa ekki skipulagsforræðið rænir engan því frelsi. Fulltrúar geta lýst sig andvíga eldinu og tekið afstöðu með mótmælendum og náttúru. Þeir geta líka gengið lengra og fyrir hönd sveitarstjórnar synjað laxeldisfyrirtækinu um ákveðin skipulagsleg atriði sem til staðar þurfa að vera í landi svo laxeldið geti hafist. Það skipulag er á hendi sveitarstjórnar og full ástæða til að láta á það reyna og það fyrir dómi ef þörf krefur.

Kjósum með íbúalýðræði

Fulltrúar VG í sveitarstjórn og í fagráðum Múlaþings hafa markvisst unnið gegn áformuðu laxeldi og gera áfram fái þeir til þess traust kjósenda. Neiti Múlaþing laxeldisfyrirtækinu um tiltekið skipulag í landi, þá fælust í því skýr skilaboð um að sveitarstjórnin taki undir andstöðu íbúanna. Það ásamt með þeim yfirlýsta vilja talsmanna eldisins, að hefja það í sátt við nærsamfélagið ætti að nægja þeim til að velja sér önnur og þarfari verkefni. Slíkt kallast að virða andstöðu og vera sér samkvæmur og að því er sómi.

Hugsaðu málið kjósandi góður. Kannski kemur að því að einhver mætir í þinn bakgarð og vill troða í hann gróðamaskínu fyrir sig og sína. Það gæti hindrað þig í að nostra þar og njóta á þann hátt sem þú hafðir valið að gera og ætlaðir að halda áfram að gera. Málið er í þínum höndum, endilega mættu á kjörstað 14. maí og tjáðu þína skoðun. Taktu afstöðu með íbúalýðræði, kjóstu VG!

Helgi Hlynur Ásgrímsson útvegsbóndi og oddviti VG í Múlaþingi
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir húsasmiður og mannfræðinemi skipar 2. sæti á lista VG í Múlaþingi
Pétur Heimisson læknir skipar 3. sæti á lista VG í Múlaþingi

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.