Kosið um þrjú vandræðamál í Fjarðabyggð

Það er líf í pólitíkinni í Fjarðabyggð. Þó umræðan sé ekki alltaf raunveruleikatengd. Fullyrðingar ráðaafla vekja áfram furðu.

Fyrir ykkur sem þyrstir í fréttir úr pólitík úr Fjarðabyggð nefni ég þrennt:

Fyrst bera að nefna „Stóra tjaldsvæðamálið“ sem hefur tekið tíma og þá litlu orku sem eftir er í meirihlutaflokkunum í Fjarðabyggð. Málið fjallar um krefjandi uppbyggingu tjaldsvæða á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Í áraraðir hefur meirihlutinn gaufað með málið og tekist að skipa nokkra starfshópa fyrir þetta risavaxna mál. Ræddar hafa verið mismunandi útfærslur en auðvitað engin ákvörðun tekin. Af hverju skyldu menn þurfa að taka ákvarðanir? Uppbygging tjaldsvæðanna er engin og því er málið margrætt nú fyrir kosningar. Svo var einnig fyrir fjórum árum og líka þar áður.

Þung fjárhagsstaða sveitarfélagsins er frétt í sjálfu sér. A-hluti sveitasjóðs hefur verið meirihlutanum mikill hausverkur þrátt fyrir hámarksútsvar. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsgjalda var tap sjóðsins 437 milljónir í fyrra. Allt samt í fínu segir meirihlutinn. En ekki hvað? Það er von á bata á næsta kjörtímabili, jafnvel árið 2025 – ef allt lukkast.

Fjárhagsstaðan er það þung að fjármálastjóri sveitarfélagsins gerði það sem honum bar og samdi sérstaka greinargerð um erfiða stöðu sjóðsins í tengslum við umræðu um ársreikning. Þá greinargerð er auðvitað ekki hægt að birta þrátt fyrir óskir fjölmiðla sem vísað hafa í kröfur um gagnsæi og upplýsingalög. Meirihlutinn hefur formlega hafnað að láta greinargerðina af hendi. Hallann má ekki ræða.

Þriðja málið er annar halli. Ekki gríðarlegur halli á A-hluta sveitarsjóðsins heldur hallinn á körfuboltavellinum á Eskifirði. Völlurinn varð hápunktur framboðsfundar á Eskifirði nú fyrir kosningar enda meirihlutinn líka búinn að missa þá framkvæmd út úr höndunum.

Á framboðsfundinum áttaði meirihlutinn sig á vandræðaganginum og bauðst til að skoða völlinn að fundi loknum. Þeir tryðu því vart að völlurinn hallaði. Hvernig gat glænýr völlurinn ekki verið í lagi?

En auðvitað hallar völlur meirihlutans. Íbúar gagnrýndu á fundinum að völlurinn hafi verið sett beint niður í gamalt bílaplan sem leiddi til þess að hann bæði hallaði og væri holóttur. Fyrrverandi formaður Íbúasamtaka Eskifjarðar, sem setti af stað söfnun fyrir körfuboltavöllinn, lýsti á framboðsfundinum stórfurðulegum samskiptum hans við sveitarfélagið í tvö ár vegna málsins. Svo þungbær voru þau honum að hann ákvað að fara í framboð gegn meirihlutanum.

Hver segir að sveitarstjórnamál geti ekki verið skemmtileg!

Er ekki kominn tími á breytingar í Fjarðabyggð? Þarf ekki að fara að hvíla Framsókn og villta vinstrið í Fjarðalistanum?

Höfundur er stöðvarstjóri hjá Löxum og skipar 11. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.