Orkumálinn 2024

Er lífshættulegt að búa á landsbyggðinni?

Nýlega birtist grein á Austurfrétt sem bar heitið „Er Reykjavík höfuðborg allra landsmanna?". Þar leggjum við sjálfstæðismenn á landsbyggðinni áherslu á mikilvægi staðsetningar Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri sem miðstöð sjúkraflugs í landinu.

Þar er um brýnt öryggismál að ræða því tíminn skiptir öllu máli í bráðaveikindum hvort sem um er að ræða tíminn eftir lendingu og að sérhæfðu bráðaþjónustunni eða fyrstu viðbrögð úti á landsbyggðinni við bráðaveikindum. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu eigum við öll að hafa jafnan aðgang að fullkomnustu heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma hvar sem við búum á landinu.

Lang víðfeðmasta sveitarfélag landsins ekki tækjum búið til fullnaðarbráðagreiningar

Nú líður senn að kosningum á Austurlandi en 19. september nk. verða fyrstu sveitarstjórnarkosningar í nýju sameinuðu sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem verður lang víðfeðmasta sveitarfélag landssins. Að tækjakostur til bráðagreiningar sé ekki til staðar til að fullgreina bráðaástand sjúklings við sjúkraflugvöllinn á Egilsstöðum í miðlægu nýju sveitarfélagi er óásættanlegt. Hér skiptir tíminn öllu máli. Við landsbyggðarfólk búum nógu langt frá sérhæfðri bráðaþjónustu þó ekki sé illa farið með tímann sem sker úr um líf okkar eða hvort við náum almennt fyrri heilsu.

Í dag þarf að keyra 68 km leið á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað í fullnaðarbráðagreiningu og svo aftur upp í Egilsstaði í sjúkraflug. Ljóst er að við verðum að eiga öflugt Fjórðungssjúkrahús sem er vel tækjum búið, en það er einnig lífsnauðsynlegt að vera vel tækjum búin til fullnaðarbráðagreiningar við sjúkraflugvöllinn á Egilsstöðum til að losna við langt ferðalag til bráðagreiningar sem getur lagt líf okkar og heilsu í hættu.

Sameiginleg rödd SSA í að stórbæta tækjakost í bráðatilvikum

Samkvæmt ályktunum haustþings SSA á Borgarfirði eystri þann 12.október 2019, lögðu öll sveitarfélög á Austurlandi fram sameiginlega bókun: „Lögð verði sérstök áhersla á eflingu frumgreininga í bráðatilvikum með kaupum á nauðsynlegum greiningartækjum á heilsugæslum staðsettum í nánd við sjúkraflugvelli.“

Sjúkraflugvellirnir eru á Egilsstöðum og í Neskaupsstað. Austurland er mjög víðfemt. Til að komast á milli staða þarf að aka í gegnum göng, yfir heiðar og fyrir skriður í allskonar veðrum. Því skiptir það miklu máli að hægt sé að fullnaðarbráðagreina við báða sjúkraflugvellina og koma sjúklingi þannig sem fyrst í viðeigandi læknismeðferð. Hver mínúta skiptir máli. Mikið vantar upp á að greiningartæki séu til staðar á Egilsstöðum til fullnaðargreininga í bráðatilvikum.

Sjálfstæðisflokkurinn í sameinuðu sveitarfélagi leggur því áherslu á að lagt verði fjármagn í kaup á sneiðmyndatæki og öðrum nauðsynlegum tækjakosti til fullnaðarbráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Þannig styttum við viðbragðstímann í bráðaveikindum fólks á Austurlandi, flýtum því að rétt meðferð geti hafist og aukum líkur á að fólk nái fyrri heilsu á ný.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.