Orkumálinn 2024

Bréf til Jóns

Bréf til þín, herra Jón:

Það er öllum venjulegum Íslendingum ljóst að vegakerfið hér á landi er komið að þolmörkum, og vonandi er þér það ljóst líka, herra Jón. Framlag til nýframkvæmda í vegagerð er lægra hérlendis en í löndunum sem við berum okkur saman við. Reyndar var það þannig fyrir stuttu síðan að það var lægra en hafði verið í 30 ár. Svona getur þetta ekki gengið lengur, Jón minn. Ríkisstjórn þín verður að gera eitthvað í málinu. Þjóðin krefst þess.

Þú verður reyndar að fyrirgefa mér þó ég sé sljór að eðlisfari, og geti ekki skilið, þegar þið stjórnmálamenn segið okkur vera eina ríkustu þjóð heims, sem á fjárlögum á ekki pening til að viðhalda grunnstoðum samfélagsins. Hvort við erum rík eða fátæk, Jón minn, það get ég því miður ekki sagt þér, ég er orðinn svo ruglaður í þessu öllu.

Hitt veit ég Jón, að hingað koma margir ferðamenn. Þeir koma með fullt af peningum til okkar. Margir fleiri fara líka um Leifsstöð. Þarna er tilvalin uppspretta eilítillar skattlagningar, til dæmis með komugjöldum, sem bæði ferðamenn og heimamenn myndu glaðir borga, fyrir aðgang að landinu, til verndar ferðamannastaða, og til uppbyggingar innviðanna.

Því miður er of seint að innheimta þessi gjöld fyrir sumarið og miðað við orð þín á Bylgjunni í dag þá er ekki til peningur í ríkiskassanum fyrir framkvæmdunum.

Því legg ég nú til, herra Jón, að þú takir lán fyrir hönd ríkisins, upp á 10-20 milljarða, svo hægt sé að einhenda sér í framkvæmdir næsta sumar. Þetta lán væri svo hægt að greiða hratt niður með skattlagningu á flugmiða eða eitthvað slíkt. Um það er mun meiri sátt meðal þjóðarinnar en um gjaldtökuhugmynd þína, það get ég sagt þér, þrátt fyrir ljóleika minn. Drífðu nú í að taka þetta lán Jón minn Gunnarsson, við verðum tilbúnir með tækin í sumar.

Höfundur er kennari og bæjarfulltrúi Á-lista á Fljótsdalshéraði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.