Austurland utan þjónustusvæðis

Þann 21. apríl sl. kynnti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, vörumerkið Vörðu - Merkisstaði á Íslandi, sem ætlað er að mynda umgjörð um áfangastaðastjórnun ferðamannastaða á Íslandi.

Varða er eins konar gæðastimpill / gæðavottorð sem ferðamannastaðir geta fengið að uppfylltum skilyrðum á borð við mikinn fjölda ferðamanna árið um kring, að þeir lúti heildstæðri umsjón, að skilvirkt samgöngukerfi og aðrir innviður séu nú þegar til staðar og svo mætti lengi telja. Í herlegheitin verður varið 700 milljónum króna á næstu þremur árum. Þetta er vissulega gott og blessað, enda mikilvægt að vanda til verks þegar tekið er á móti ferðafólki.

Það kemur svo upp úr dúrnum að einungis Gullfoss, Geysir, Þingvallaþjóðgarður og Jökulsárlón hafa fengið þessa viðurkenningu, a.m.k. enn sem komið er, sem sagt þeir staðir sem nú þegar eru fjölsóttastir hér á landi og þurfa tæplega meiri kynningar við.

Þau eru vissulega mörg handtökin vegna gríðarlegs álags á náttúruperlur á Suður- og Suðvesturlandi, sem er fyrirsjáanlegt þegar ferðamenn fara að venja komur sína í meira mæli hingað til lands þegar veirufárinu slotar, en sú spurning vaknar hvort ekki sé snjallt að nota tækifærið til að jafna álagið sem hlýst af þeim gríðarlega fjölda ferðafólks sem mun í náinni framtíð leggja leið sína til landsins með fleiri valmöguleikum víðar um landið.

Þess má geta að tæplega 21 milljarði verður varið í viðbyggingu við flugstöð Leifs Eiríkssonar á næstu þremur árum, auk þess sem ISAVIA, eigandi Keflavíkurflugvallar, var rekið með 13 milljarða halla á síðasta ári. Malbikuð akstursbraut meðfram Egilsstaðaflugvelli bliknar í þeim samanburði og er hvergi nærri nóg, þó þar sé vissulega um að ræða mjög aðkallandi framkvæmd.

Þó ofangreint Vörðu-verkefni ferðamálaráðuneytisins sé eflaust góðra gjalda vert, má segja að það endurspegli þá ofuráherslu sem hingað til hefur verið lögð á ferðaþjónustu í þægilegri akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Það gerir ekkert fyrir ferðaþjónustu í öðrum landshlutum.

Við þurfum alvöru átak í ferðaþjónustu landsbyggðanna, átak sem opnar fleiri gáttir inn í landið en þá sem nú er langsamlega stærst, Keflavíkurflugvöll. Með slíku átaki mætti efla lífsgæði og síðast en ekki síst stuðla að meira jafnvægi milli suðvesturhornsins og landsbyggðanna.

Austurland verður áfram utan þjónustusvæðis nema öflugir málsvarar þess hefji upp raust sína á Alþingi.

Höfundur er oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi við Alþingiskosningarnar sem fram fara 25. september næstkomandi.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.