Austurland og heimsmarkmiðin

Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Frá því eru liðin hundrað ár og þess hefur verið minnst um land allt á árinu með ýmis konar viðburðum. Austurland er ekki undanskilið og þar var hrint í framkvæmd metnaðarfullu verkefni sem ber heitið „Austfirskt fullveldi – Sjálfbært fullveldi?“ Þar tóku átta austfirskar mennta-, menningar- og rannsóknastofnanir sig saman til að skoða á nýstárlegan hátt austfirskt fullveldi, sjálfbærni og tengslin þar á milli.


Meðal afurða verkefnisins voru fjórar sýningar sem settar voru upp í Tækniminjasafni Austurlands, Randúlffssjóhúsi, Safnahúsinu á Egilsstöðum og Skriðuklaustri. Sýningarnar opnuðu þann 17. júní. Þær sýndu skáldaðar en trúverðugar sögur barna frá árinu 1918 annars vegar og 2018 hins vegar, innblásnar af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Hér fyrir neðan má sjá sýninguna sem sett var upp í Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði þar sem unnið var með markmiðin sjálfbærar borgir og samfélög, menntun fyrir alla, nýsköpun og uppbygging og alþjóðleg samvinna en markmiðin má kynna sér á www.un.is/heimsmarkmidin

1918
Ég heiti Þórhildur og á heima á Seyðisfirði. Pabbi minn rekur verslun og móðir mín er í kvenfélaginu og er mjög upptekin þar. Ég á fjögur systkini og svo eru hér í húsinu föðurafi minn, systir mömmu, tvær vinnukonur og stundum dveljast hjá okkur innanbúðarmenn sem eru að vinna í versluninni hjá föður mínum. Ég hef mjög mikinn áhuga á ljósmyndun og hef fengið að fylgjast með á ljósmyndastofunni hér í bænum. Það hefur verið mjög fróðlegt. Ég fékk pabba til að gefa mér notuð ljósmynda- og framköllunartæki og er að æfa mig að taka myndir. Mig langar að fara til Danmerkur að læra meira um ljósmyndun þegar ég verð stærri. Það er svo flott að hægt sé að færa það sem maður sér yfir á blað. Tækniframfarir eru allt um kring og möguleikar mannshugans óendanlegir.

Það kom skip í gær frá Danmörku og nokkrir með því. Það var búið að vera í sóttkví í nokkra daga út af spænsku veikinni áður en það fékk að leggjast að landi. Við fengum líka dönsku blöðin. Það er leiðinlegt að ekki er lengur gefið út blað hér á Seyðisfirði, mér fannst framhaldssagan í því svo skemmtileg. Mamma og pabbi lásu líka allar fréttirnar og stundum sendu þau inn greinar sjálf.

Það er mikið vöruúrval í versluninni hans pabba, fatnaður, matvörur, byggingarvörur, bækur og margt fleira. Mér finnst gaman að fylgjast með þegar sendingarnar eru opnaðar og sjá hvað leynist í þeim. Ég laumast líka oft í kandísinn í búðinni. Móðir mín er formaður kvenfélagsins, þær eru að undirbúa kirkjubyggingu hér inn í bæ og eru að gera alls konar hluti til að safna fjármunum til þess. Síðast var leikrit sett upp og grímudansleikur var haldinn í vetur fyrir börn og fullorðna. Það var virkilega skemmtilegt. Pabbi er í bæjarstjórninni og oft að hitta alls konar menn. Ég og systkini mín erum í stúku. Þar lærum við marvíslega hluti og heitum því að drekka aldrei áfengi.

2018

Ég er kölluð Hilda og er 12 ára. Mamma og pabbi eru skilin. Ég á einn bróður sem er 7 ára og eina systur sem er 4 ára. Mamma vinnur í búðinni hér á Seyðisfirði. Hún vinnur mjög mikið og skúrar þar líka eftir lokun. Ég er með sérherbergi en systkini mín sofa inni hjá mömmu því við leigjum út hitt herbergið til túrista á sumrin. Það er gaman að hitta alls konar fólk frá öðrum löndum og ég er orðin mjög góð í ensku. Mig langar að ferðast mikið þegar ég verð stór. En við förum aldrei til útlanda, höfum ekki efni á því.

Mér finnst ekkert sérstaklega gaman í skólanum, ég er lesblind og stundum lengi að hugsa. Ég á góða vini í skólanum sem eru líka með mér í fótbolta og blaki. Þau koma samt ekki með mér á opnanir í LungA skólanum, ég fer ein þangað. Ég á góða vini þar líka. Það er örugglega gaman að vera listamaður en kannski erfitt líka. Þau eiga oft ekki mikinn pening. Mig langar að eiga peninga þegar ég verð stór. Mig langar að læra hárgreiðslu og held ég fari til Akureyrar að læra það.

Mamma skammar mig oft og segir að ég sé of mikið í símanum og á netinu. En mér finnst það ekki, maður verður að vita hvað hinir eru að gera og segja. Stundum leik ég mér við Tönju vinkonu og við erum saman að gera fíflaleg snöpp.

Sýninguna í heild sinni má sjá á fullveldisfagnaði í Menntaskólanum á Egilsstöðum á laugardaginn.

Sjá nánar á www.austfirsktfullveldi.is


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.