Ekkert sem heldur þér lengur á Egilsstöðum en það tekur að fylla á tankinn

egilsstadir 04062013 0028 webÞað getur stundum verið erfitt líf að markaðssetja sig og gera öllum til hæfis. Inn á borð Tístsins bárust nýverið ferðalýsingar um þéttbýlið á Egilsstöðum sem ekki er beint hægt að segja að auglýsi hann sem fallegasta eða skemmtilegasta stað Austurlands.

Lýsingin á Egilsstöðum í hinum vinsæla ferðahandbókaflokki Lonely Planet byrjar til dæmis þannig: „Hversu mikið sem þú leggur á þig við að reyna að finna einhverja dulda töfra muntu komast að því að hinir limalöngu Egilsstaðir einkennast ekki af stórkostlegri fegurð. Staðurinn er aðalmiðstöð samgangna og verslunar í fjórðungnum. Því miður er það eins heillandi og það hljómar."

Ekki tekur betra við þegar Egilsstöðum er flett upp á ferðavefnum TotalIceland. „Það er ekki þar með sagt að þú baðir þig í menningu staðarins eða vingjarnleika heimamanna. Þú munt ekki gera það," segir meðal annars um staðinn.

Greinarhöfundur segir sérstaka stemmingu ríkja á Egilsstöðum sem sé í raun fyrsta stoppistöð þeirra sem komi með Norrænu og sömuleiðis Reykvíkinga á ferð um Hringveginn. Þá sé sjarmi yfir bóndanum á Egilsstöðum sem heyi túnin gegnt flugvellinum.

„En hvernig sem á það er litið er ekki margt þar sem heldur þér lengur en það tekur að fylla á tankinn nema þú notir staðinn sem miðstöð til að skoða þá fjölmörgu glæsilegu staði sem Austurland hefur upp á að bjóða."

Þá er tekið fram að eina safn bæjarins, Minjasafn Austurlands, sé ágætt fyrir þá sem hafi „lágmarks áhuga á gömlu íslensku dóti en kveiki ekki á nokkurn hátt í kynlífinu."

Eftir ágæta umsögn um gistimöguleika staðarins er komið að niðurlaginu um miðbæinn á Egilsstöðum sem er „ekki á nokkurn hátt eftirtektarverður og í raun í útjaðri bæjarins við Hringveginn. Þar er fátt áhugavert nema stórmarkaðir, minjagripaverslanir og að sjálfsögðu sé tjaldsvæðið nálægt."

Það er kannski ekki skrýtið þótt unglingahljómsveit frá Seyðisfirði hafi á sínum tíma sungið um partýdýrið sem dó úr leiðindum af því að búa á Egilsstöðum...

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.