Þetta er ungt og leikur sér!

kennararHall1Það eru án efa margir starfsmenn leik- og grunnskóla sáttir við það í dag að hafa unnið af sér starfsdag, eða þá að hafa skipulagt ferð eða annað á þessum dýrðardegi.

Þeir voru í það minnsta eiturhressir kennararnir úr Hallormsstaðaskóla sem voru að leggja land undir fót í dag í starfsmannaferð með stefnu á Þórbergssetur á Hala í Suðursveit.

Kennarar láta sér sjaldnast leiðast og höfðu skipuleggjendur ferðarinnar sett upp sérstaka stigakeppni á milli bíla ferðalangana. Þar er hægt að vinna sér inn stig fyrir ýmis afrek, svo sem að ná ljósmynd af álfi, hitta munk og mynda hann, dansa við eldri borgara og banka í bakið á einhverjum ókunnugum, svo eitthvað sé nefnt.

Eins var hægt að vinna sér inn allmörg stig fyrir að koma sér í fjölmiðla. Austurfrétt óskar þessum fríða hópi góðrar ferðar og ætlast til ævarandi þakklætis þeirra sem við vorum að enda við að tryggja stig.

Gleðilegt sumar!

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.