Blak: Þróttur hafði ekki við KA
Lið Þróttar í úrvalsdeild kvenna í blaki tapaði 0-3 fyrir KA í gærkvöldi á heimavelli í síðasta leik sínum í deildinni á þessu ári.Körfubolti: Slæmur kafli rétt fyrir leikhlé réði úrslitum gegn Tindastóli
16-1 kafli Tindastóls gegn Hetti réði úrslitum í leik liðanna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á Sauðárkróki í gærkvöldi.Gat ekki réttlætt að horfa á handboltann í brakandi þurrki
Óhætt er að segja að fátt sameini Íslendinga meira en þegar íslensk landslið taka þátt í stórmótum í handbolta. Leikir karlalandsliðsins í handbolta hafa verið vinsælasta sjónvarpsefnið á Íslandi í fimm ár í röð. Þannig sýna tölur að meira en helmingur þjóðarinnar horfði á leik Íslands og Ungverjalands á heimsmeistaramóti karla í Svíþjóð í byrjun janúar á síðasta ári. Og nú er enn að hefjast stórmót þar sem Ísland er meðal þátttakenda.
Blak: Þróttur vann eina hrinu gegn Hamri
Eftir tvo sigurleiki í röð tapaði karlalið Þróttar í blaki 1-3 fyrir Hamri þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í Neskaupstað á laugardag. Liðið á í hörkubaráttu við HK og KA um fjórða sætið og þar með spilarétt í efri hluta deildarinnar á nýju ári.Blak: Sextíu stig skoruð í annarri hrinu Þróttar gegn HK
Karlalið Þróttar lagði HK í úrvalsdeildinni í blaki um helgi, 1-3. Upphækkun þurfti í tveimur hrinum til að fá úrslit. Kvennaliðið tapaði hins vegar 3-0. Leikið var í Kópavogi.Körfubolti: Naumt tap í fyrsta leik ársins
Hattarmenn máttu þola tap í fyrsta leik ársins í Subway-deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Höttur tók þá á móti Grindavík og eftir mikla baráttu undir lok leiksins máttu heimamenn sætta sig við sjö stiga tap, 71-78. Höttur situr í 8. sæti deildarinnar, síðasta sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppninni, með 12 stig.