Viðar Örn þjálfar körfuknattleikslið Hattar
Íþróttafræðingurinn Viðar Örn Hafsteinsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Hattar í körfuknattleik. Viðar tekst á við nokkuð stórt verkefni en hann er aðeins 26 ára gamall.
Íþróttafræðingurinn Viðar Örn Hafsteinsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Hattar í körfuknattleik. Viðar tekst á við nokkuð stórt verkefni en hann er aðeins 26 ára gamall.
Ásgeir Magnússon, markvörður 2. deildar liðs Hattar í knattspyrnu, vakti mikla athygli á þriðjudag þegar hann kom inn á og varði vítaspyrnu í sínum fyrsta leik með U-21 árs landsliði Íslendinga. Hann segir það hafa verið mikilvæga reynslu að spila með Hattarliðinu í sumar.
Sópransöngkonan Rannveig Káradóttir og pínaóleikarinn Birna Hallgrímsdóttir halda tónleika í Egilsstaðakirkju í kvöld. Áherslan er á lög sem tengjast íslenskri náttúru en markmiðið er að sýna áhrif íslenskrar náttúru á tónskáld og textahöfunda.
UÍA, sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað og Náttúrustofa Austurlands efna til fjölskyldugöngu á Grænfell á morgun í tilefni Dags íslenskrar náttúru. Fjallið var valið sem framlag UÍA í gönguverkefni Ungmennafélags Íslands, Fjölskyldan á fjallið, í ár. Gengið verður upp beggja vegna fjallsins og hittast hóparnir á toppnum.
Ólafur Bragi Jónsson, ökuþór frá Egilsstöðum, varð nýverið Íslandsmeistari í torfæruakstri í annað sinn. Ólafur Bragi tók þátt í þremur keppnum í sumar og vann þær allar.
Nýverið undirrituðu Davíð Þór Sigurðarson, formaður Íþróttafélagsins Hattar og Arnar Páll Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum samstarfssamning milli félaganna tveggja. Með samningnum verður Landsbankinn einn af aðalstyrktaraðilum barna og unglingastarfs Hattar á Egilsstöðum.
Höttur tryggði sér í dag sæti í 1. deild karla í knattspyrnu í fyrsta sinn þegar liðið vann fallið Árborgar 1-3 á Selfossi. Fjöldi Héraðsbúa mætti á völlinn og studdi dyggilega við bakið á sínu liði.
Í dag var undirritað samstarfsyfirlýsing Síldavinnslunnar hf, Alcoa Fjarðaáls hf. Launafls ehf., Olíverzlunar Íslands hf., Eskju hf., SÚN og yngri flokka Fjarðabyggðar í knattspyrnu. Undirritað var í Veiðiflugunni á Reyðarfirði, en aðilar yfirlýsingarinnar skuldbinda sig að vinna saman að því að efla tækifæri barna og unglinga í Fjarðabyggð til að æfa og leika knattspyrnu með sem bestri umgjörð.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.